Stormurinn er nú að ganga niður en hann hefur valdið nokkrum usla í dag, þá einkum á Kjalarnesi. Samkvæmt vikulegum vettvangi borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar, fundaði neyðarstjórn Reykjavíkurborgar á klukkutíma fresti í dag til að safna upplýsingum og taka stöðuna.
Borgarstjóri tekur fram að foktjón hafi mest verið áberandi í Grafarvogi, Úlfarsárdal og Grafarholti.
Dagur tekur fram að viðbragðsaðilar hafi staðið vaktina af prýði í dag.
„Að mínu mati hafa slökkvilið, lögregla og aðrir viðbragðsaðilar og síðast en ekki síst björgunarsveitir unnið gríðarlega vel og ekki stigið feilspor. Þó það versta sé vonandi afstaðið hér á höfuðborgarsvæðinu getum við ennþá búist við því að eitthvað komi upp á eða eitthvað hafi gerst sem við vitum ekki ennþá af, t.d. flóð í kjöllurum eða eignatjón.
Já, við erum enn og aftur minnt á að við búum í landi þar sem gera þarf ráð fyrir að óblíð náttúra kalli á vel skipulagt viðbragð, góða hlustun og samstöðu. Það finnst mér borgarbúar sannarlega hafa sýnt í dag. Ég vona að komandi helgi verið róleg og ánægjuleg.“