fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Lögmaður manns sem svikinn var af Íbúðalánasjóði – „Eftir stendur aðeins valdhroki þeirra sem vildu ekki hlusta“

Heimir Hannesson
Laugardaginn 7. nóvember 2020 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómsmál vegna hrunsins halda áfram að birtast á dagskrá íslenska dómstóla þó rúm tólf ár séu nú liðin frá hruninu. Nú er mál fyrir dómi sem lögmaðurinn Sævar Þór Jónsson rekur fyrir skjólstæðing sinn og segir Sævar frá málinu í fróðlegum pistil á Vísi í gær. Segir Sævar þar málið fjalla um reiknimistök sem Íbúðarlánasjóður gerði í kjölfar hrunsins, og kostuðu umbjóðanda sinn húsnæði hans.

Skjólstæðingur hans hafði tekið verðtryggt lán fyrir fasteign sinni, eins og svo margir aðrir, og horfði svo á lánið sitt stökkbreytast í verðbólguskotinu sem fylgdi hruninu. Sævar skrifar:

Skjólstæðingur minn hafði sótt um skilamálabreytingu á láni sínu hjá Íbúðarlánasjóði sem fólst í því að dreifa greiðslubyrði með því að fjölga gjalddögum á ári úr fjórum í mánaðarlegar greiðslur. Skilmálabreytingin var samþykkt en þau mistök gerð af hálfu Íbúðalánasjóðs að það gleymdist að fjölga heildar fjölda gjalddaga. Þetta hafði þær afleiðingar að lánstíminn styttist um mörg ár og greiðslubyrði lánsins hækkaði í stað þess að lækka. Skjólstæðingur minn gat ekki staðið í skilum með lánið en sá að eitthvað hefði farið úrskeiðis. Hann leitaði til Íbúðarlánasjóðs sem vildi ekki gangast við mistökunum. Umbjóðandi minn leitaði á náðir umboðsmanns skuldara sem synjaði honum þar sem sýnt þótti að þeirra mati að greiðsluskjól myndi ekki gagnast honum enda greiðslubyrði lánsins langt umfram það sem skjólstæðingur minn réði við. Til að gera langa sögu stutta þá missti hann heimili sitt á uppboði.

Við tóku viðræður við sjóðinn um úrbætur og að hann myndi axla ábyrgð á mistökum sínum. Þó Íbúðalánasjóður hafi viðurkennt mistökin var skjólstæðingi Sævars sagt að ekkert væri hægt að gera. „Umbjóðandi minn átti sem sagt að sætta sig við mistök sjóðsins og una því að hafa misst húsnæðið sitt. Í kjölfarið ákvað hann að leita réttar síns,“ skrifar Sævar og heldur áfram:

Eftir marga ára baráttu gerðist það loks að hann fékk staðfestingu á sínum málstað með matsgerð dómkvaddra yfirmatsmanna. Þar birtist svart á hvítu að, hefði verið rétt staðið að útreikningi skilmálabreytingarinnar, þá hefði greiðslubyrðin verið miklu lægri og skjólstæðingurinn haft gjaldfærni til að standa undir henni. Hefði verið hlustað á hann í öndverðu og lánið leiðrétt strax þá hefði hann haldið eigninni og jafnframt getað nýtt sér úrræði umboðsmanns skuldara sem þá voru í boði. Þrátt fyrir að eignamyndun umbjóðanda míns hafi verið lítil í íbúðinni á þeim tíma þá hefur verð á fasteignum hækkað mikið frá hruni, það mikið að hann hefði myndað eign í íbúðinni sem hann hefði síðar getað leyst út.

Sævar segir skýrt að bæði Umboðsmaður skuldara og Íbúðarlánasjóður beri ábyrgð í þessu máli.

Umboðsmaður hefði með réttu fyrir hönd skuldara átt að ganga eftir leiðréttingunni eða taka mið af mistökunum þannig að skjólstæðingnum yrði ekki hent út úr greiðsluskjólinu. Hið minnsta hefði skuldarinn átt að fá að njóta vafans. Framganga þessara stofnanna er með ólíkindum en því miður alls ekki einsdæmi. Umbjóðandi minn missti heimili sitt og enginn virðist ætla að axla ábyrgð á því. Lítilmagninn hafði á endanum rétt fyrir sér og bjó yfir styrk til að halda málinu til streitu. Eftir stendur aðeins valdhroki þeirra sem vildu ekki hlusta á hann en máttu og áttu að vita betur.

Málið er nú til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega