fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

„Menn með svona hættulegar skoðanir eru auðvitað bæði holdsveikir og geislavirkir“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 13. nóvember 2020 14:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið mikla gagnrýni vegna skoðana sinna á sóttvarnaraðgerðum, en honum hefur fundist stjórnvöld ganga of langt í samkomutakmörkunum. Í pistli sem að Brynjar skrifar og birtist á Vísi í dag segir hann að þeir sem að gagnrýna sig séu oft aðeins of uppteknir af vísindum.

Margir sækja sér huggun og styrk í því að skoðanir þeirra á skipulagi samfélagsins séu byggðar á vísindum. Þeir eru mjög áberandi í seinni tíð og hafa svo til tekið yfir umræðuna á samfélagsmiðlum, ekki síst þeim ágæta miðli Tvitter. Ég leyfði mér þá ósvinnu að efast um réttmæti og skynsemi aðgerða yfirvalda í glímunni við þennan veirufjanda sem herjar á heimsbyggðina. Það var við manninn mælt að fólkið, sem gjarnan kennir sig við frjálslyndi, brást hið versta við og ég sakaður um að afneita vísindum. Menn með svona hættulegar skoðanir eru auðvitað bæði holdsveikir og geislavirkir og eins og alltaf er útskúfun besta ráðið. Þegar frjálsri hugsun er úthýst verða vísindin sjálf og þekkingin fyrstu fórnarlömbin.

Brynjar segir að vísindi séu ekki til þess að skipuleggja samfélagið, heldur til þess að lýsa og spá fyrir um. Þá vitnar hann í þá Ronald Reagan og Winston Churchill.

Kannski er rétt sem Ronald Reagan sagði einu sinni að fasistar framtíðarinnar kæmu fram undir nafni frjálslyndis. Vandi þeirra er að vísindum er ekki ætlað að skipuleggja samfélagið. Vísindunum er fremur ætlað að lýsa náttúrunni og samfélaginu og spá fyrir um gang þeirra með beitingu gagnrýninnar hugsunar óháð öllu boðvaldi. Engin gild eða óhrekjanleg vísindi eru til sem slá föstu í eitt skipti fyrir öll hvernig er best að stýra samfélaginu. Churchill hitti þó naglann á höfuðið þegar hann sagði að lýðræðið væri versta stjórnarfyrirkomulagið fyrir utan öll önnur sem hefðu verið reynd.

Svo tekur Brynjar dæmisögu frá ríki þar sem að var tækniræði eða vísindaræði var við lýði, en samkvæmt Brynjari enduðu allir þar með skítugt hárið.

Tækniræði eða vísindaræði hefur verið reynt. Í ráðstjórnarríkjunum reiknuðu vísindamenn t.d. nákvæmlega út hversu mikinn hárþvottalög þyrfti að framleiða, allt út frá hárfínum vísindalegum forsendum um fjölda fólks og rétt metnar þarfir þess fyrir hárþvott. Hið rétta magn var svo framleitt í stórri verksmiðju til að hámarka hagkvæmni. Þetta hljómaði vel í hugum þeirra vísindamanna sem reiknuðu og þróuðu þessar kenningar og ráðamanna sem hrintu þeim í framkvæmd með valdi. Frá sjónarhóli fólksins sem sat eftir í alræðisríki illa lyktandi og með skítugt hárið var þetta síður spennandi.

Brynjar segir að gjarnan séu þeir sem að vilja leggja meiri áherslu á vísindi í pólitík í dulbúning, og velji einungis „handvaldar“ vísindalegar tilgátur eftir hentisemi. Hann segir að líklega sé stærsta vandamálið að menn eins og Winston Churchill og Ronald Reagan séu ekki til staðar, en að mati Brynjars höfðu þeir tveir sérstaka tilfinningu fyrir eðli mannsins. Hann segir að stjórnmálamenn  dagsins í dag hafi ekki þessa tilfinningu og haldi að hlutirnir breytist með einu pennastriki.

Ef sú krafa er komin upp í íslenskum stjórnmálum að samfélaginu verði stýrt með vísindum ættu forvígismenn þeirra kenninga að byrja á að svara hvort þeir vilji ekki berjast fyrir brautargengi vísindakenninga um haganlegustu stjórn fiskveiða. Mér segir svo hugur að fáir verði til þessa enda eru þeir sem vilja stjórna samkvæmt vísindum oft aðeins að dulbúa ráðstjórnarkenndir sínar með handvöldum vísindalegum tilgátum.

Kannski er stærsti vandinn að við höfum engan Winston Churchill eða Ronald Reagan lengur eða aðra sem hafa tilfinningu fyrir eðli mannsins og samfélagi hans. Nú sitjum við uppi með stjórnmálamenn sem halda að lífskjör okkar og velferð sé bara ákveðin á þingi eða í stjórnarráðinu með einu pennastriki. Jafnvel að peningarnir verði til í sérhannaðri skúffu hjá Bjarna Ben og maturinn verði til í Bónus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Skipta út bankaráði Landsbankans í heild sinni eftir TM-hneykslið

Skipta út bankaráði Landsbankans í heild sinni eftir TM-hneykslið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ásakanir um lýðskrum og óráðsíu gengu á víxl á fundi borgarstjórnar og spurt hvort enginn viti hversu margir milljarðar eru farnir

Ásakanir um lýðskrum og óráðsíu gengu á víxl á fundi borgarstjórnar og spurt hvort enginn viti hversu margir milljarðar eru farnir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bjarkey ráðherra í fyrsta skipti

Bjarkey ráðherra í fyrsta skipti