Gífurlega kröftugur jarðskjálfti reið yfir rétt í þessu og fundu margir vel fyrir honum á höfuðborgarsvæðinu og víða. Hér á skrifstofu DV lék allt á reiðiskjálfi og blaðamanni varð hreint ekki um sel.
Þingmaður Pírata, Helgi Hrafn Gunnarsson, var einmitt að flytja ræðu á Alþingi þegar jarðskjálftinn reið yfir. Glöggur tístari náði atvikinu á myndskeið og deildi á Twitter.
Jarðskjálfti á Alþingi pic.twitter.com/cnWPtZXHkL
— Andri S. Hilmarsson (@AndriHilmarsson) October 20, 2020