Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Novator, fjárfestingafélagi Björgólfs Thor Björgólfssonar, hyggst láta af störfum bráðlega hjá félaginu. Þetta staðfestir hún við Kjarnann.
Ragnhildur starfaði áður sem blaðamaður og fréttastjóri hjá Morgunblaðinu en hefur verið hjá Novator í um áratug hvar hún hefur bæði verið talsmaður Björgólfs Thors í kjölfar hrunsins og fjárfestinga Novators. Ragnhildur er eiginkona Hönnu Katrínar Friðriksson, þingmanns Viðreisnar
Hefur Kjarninn eftir Ragnhildi að starfslokin séu gerð í sátt og samlyndi.