fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur Þór undirritaði samning við Bretland um Brexit – „Þetta þýðir að við stöndum jafnfætis aðildarríkjum ESB“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 28. janúar 2020 16:20

Utanríkisráðherrar Noregs, Liechtenstein og Íslands ásamt útgöngumálaráðherra Bretlands við undirritun samningsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag undirrituðu utanríkisráðherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein samning við Bretland vegna útgöngu Bretlands úr Evrópska efnahagssvæðinu, en útgangan gengur alla jafna undir nafninu Brexit.

Bretland mun ganga úr Evrópusambandinu 31. janúar nk. á grundvelli útgöngusamnings við ESB. Samningurinn við Ísland og hin EFTA-ríkin innan EES leysir úr viðeigandi útgönguskilmálum með sambærilegum hætti og gert er í útgöngusamningi Bretlands og ESB.

Samningurinn tryggir m.a. að Íslendingar sem búa í Bretlandi eða flytja þangað fyrir lok hins svokallaða aðlögunartímabils geti verið þar áfram og að réttindi þeirra verði í öllum grundvallaratriðum óbreytt. Þetta á einnig við um breska ríkisborgara sem búa á Íslandi.

Í samningnum er einnig að finna ákvæði um tengd réttindi sem varða til að mynda almannatryggingar og viðurkenningu á starfsmenntun og hæfi. Þá er í samningnum greitt úr ýmsum tæknilegum úrlausnarnefnum vegna útgöngu Bretlands úr EES á sviði vöruviðskipta, opinberra innkaupa, hugverkaréttinda, persónuverndar og tollamála.

Íslendingar standi jafnfætis öðrum

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að um afar þýðingarmikinn áfanga sé að ræða.

„Ljóst var frá upphafi að margt sem Bretar og ESB sömdu um varðandi útgönguna ætti einnig við um okkur vegna aðildar okkar að EES-samningnum. Þetta þýðir að við stöndum jafnfætis aðildarríkjum ESB þegar kemur að því að leysa úr þessum málum.“

Jafnframt marki undirritunin upphafið af nýjum og spennandi fasa.

„Nú þegar gengið hefur verið frá útgöngunni sjálfri mun Bretland geta hafið viðræður um framtíðarsamband sitt við önnur ríki. Við erum vel í stakk búin fyrir framtíðarviðræður okkar við Bretland og hlökkum til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Markmið okkar er að gera nýjan samning sem tryggir langvarandi tengsl ríkjanna, þar á meðal á sviði viðskipta“

sagði Guðlaugur Þór.

Lög um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu sem samþykkt voru á Alþingi í október 2019 tryggja að samningurinn geti tekið gildi á Íslandi. Í útgöngusamningi Bretlands og ESB eru einnig ákvæði um aðlögunartímabil sem hefst frá útgöngudegi og mun standa yfir til loka árs 2020 með möguleika á framlengingu. Á því tímabili mun regluverk ESB og allir alþjóðasamningar, þar með talið EES-samningurinn, halda áfram að gilda um Bretland. Samkvæmt íslenskum lögum verður litið á Bretland með sama hætti og önnur aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins á aðlögunartímabilinu.

Ísland mun brátt hefja samningaviðræður við Bretland um framtíðarsamskipti ríkjanna. Viðræðurnar munu standa yfir á aðlögunartímabilinu sem nú tekur gildi og fara fram samhliða samningaviðræðum Bretlands við ESB. Verið er að skoða möguleika á samstarfi EFTA-ríkjanna innan EES þar sem það á við og samræmist hagsmunum ríkjanna. Mikill vilji ríkir í Bretlandi og á Íslandi til að tryggja áfram náin tengsl og hagstæð viðskipti ríkjanna.

Guðlaugur Þór fundaði einnig sérstaklega með utanríkisráðherrum Noregs og Liechtenstein.

 

Staðan vegna útgöngu Bretlands úr ESB og EES er þá í meginatriðum þessi:

  • Ísland, Noregur og Liechtenstein hafa undirritað samning við Bretland vegna útgöngu þess úr ESB og þar með úr EES í lok vikunnar.
  • Samningurinn tryggir m.a. réttindi Íslendinga sem búsettir eru í Bretlandi og Breta sem búa hér á landi ásamt öðrum úrlausnarefnum.
  • Þegar Bretland gengur úr ESB verða þó engar breytingar á sambandi okkar við Bretland fyrst um sinn þar sem aðlögunartímabil tekur gildi til loka 2020.
  • Ísland mun hefja samningaviðræður við Bretland um framtíðarsamband ríkjanna fljótlega eftir útgöngu.
  • Markmið okkar og Bretlands er að viðhalda nánu og góðu framtíðarsambandi og nýta best þau tækifæri sem kunna að skapast.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“