Ástráður Haraldsson, héraðsdómari, er einnig meðal umsækjenda um embætti við dómara í Landsrétt, en sú staða losnaði þegar Ingveldur Einarsdóttir var skipuð Hæstaréttardómari í desember.
Nafn Ástráðs gleymdist hinsvegar í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins upphaflega, vegna mannlegra mistaka, líkt og Kjarninn greinir frá. Hefur nú verið bætt úr því.
Umsækjendurnir eru því fjórir, en ekki þrír:
Ástráður er einn af fjórum sem misstu af dómarasæti við Landsrétt í Landsréttarmálinu, þegar Sigríður Á. Andersen þáverandi dómsmálaráðherra tilnefndi fjóra dómara sem ekki voru í hæfnismati dómnefndar um skipun 15 dómara við hinn nýja Landsrétt árið 2017. Komst Hæstiréttur loks að því að Sigríður hefði með þessu brotið stjórnsýslulög, og var það einnig niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu, sem varð til þess að Sigríður sagði af sér embætti.
Ástráður stefndi ríkinu vegna þessa og fékk dæmdar miskabætur, en hann var síðar skipaður dómari við héraðsdóm Reykjavíkur.
Hugur Ástráðs virðist þó hjá Landsrétti, því hann sótti einnig um að vera skipaður í laust embætti dómara í Landsrétti í maí í fyrra, þegar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson settist í helgan stein.
Þá fór Ástráður fram á að vera settur í annað af tveimur lausum dómarastörfum sem laus eru, vegna leyfa þeirra dómara sem skipaðir voru ólöglega af Sigríði á sínum tíma.
Virðist því um þónokkra þrautargöngu hjá Ástráði að ræða, að fá starf hjá Landsrétti, en þolinmæði þrautir vinnur allar.