fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Trans Ísland fær styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 10. janúar 2020 18:00

Mynd- Reykjavíkurborg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti Trans Ísland styrk úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Þetta er í 33. sinn sem veittur er styrkur úr sjóðnum og nemur styrkurinn 500 þúsund krónum.

Trans Ísland fær styrkinn í ár fyrir  baráttu sína, stuðning og málsvörn fyrir transfólk á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2007 og hefur síðan verið helsti málsvari transfólks á Íslandi.  Trans Ísland er ungt og framsækið félag sem hefur haldið uppi öflugri kynningar- og fræðslustarfsemi hér á landi auk þess að vekja athygli á alþjóðavettvangi fyrir árangur sinn, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar.

Lagaleg staða transfólks á Íslandi hefur bæst til muna með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi á síðasta ári og lagði Trans Ísland sitt á vogarskálarnar við að gera lögin að veruleika. Lögin eru nauðsynlegt skref fram á við í mannréttindabaráttu hinsegin fólks, en enn eru óunnin verkefni hér á landi svo að allir megi njóta sömu réttinda.

Transfólk er þolendur fordóma, ofsókna og ofbeldis á hverjum degi víða um heim m.a.s. hér á landi.  Trans Ísland gegnir gífurlega mikilvægu hlutverki við að vinna gegn slíkum fordómum í samfélaginu.

Gunnar Thoroddsen

Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála. Gunnar Thoroddsen var borgarstjóri í Reykjavík í tólf ár, frá árinu 1947 til ársins 1959.

Eftir það var Gunnar þingmaður, fjármálaráðherra, sendiherra, hæstaréttardómari, prófessor við Háskóla Íslands, iðnaðar- og félagsmálaráðherra og loks forsætisráðherra til ársins 1983 auk þess sem hann gengdi fjölda nefndar og trúnaðarstarfa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli