Auður Kjartansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Auður er með B.S. gráðu í landfræði, cand. mag gráðu í landfræðilegum upplýsingakerfum og meistaragráðu í forystu og stjórnun.
Hátt í þriðja tug umsókna barst um starf framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur þegar það var auglýst í vor.
Í fréttatilkynningu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur segir:
Jóhannes Benediktsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur: „Það er mikið gleðiefni hve margir hæfir einstaklingar sýndu starfinu áhuga. Við hlökkum til að starfa með Auði. Auk þess sem hún er afar hæf, teljum við að reynsla hennar af útivistarstarfi og skipulagningu þess komi til með að nýtast mjög vel í starfi félagsins, sem hefur umsjón með tveimur af fjölsóttustu útivistarsvæðunum á suðvesturhorni landsins – Heiðmörk og Esjuhlíðum. Skógræktarfélagið leggur einnig mikið upp úr loftslagsmálum og á þeim vettvangi mun reynsla Auðar af vísindastarfi hjá Veðurstofunni koma að góðum notum.“
Auður hefur starfað sem sérfræðingur í ofanflóðum hjá Veðurstofu Íslands frá árinu 2005. Einnig hefur Auður starfað við leiðsögn og verið fjallaleiðsögumaður helstu fjöllum landsins um árabil. Hún var verkefnisstjóri hjá Héraðsskógum og hefur verið fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands um árabil. Auður kom að stofnun Ferðafélags barnana og sat í stjórn þess á upphafsárum félagsins. Einnig hefur hún verið yfirkennari Björgunarskólans á sviði snjóflóða og haft umsjón með fjölda námskeiða um útivist. Auður er gift Páli Guðmundssyni og eiga þau saman tvö börn.
Auður tekur við starfi framkvæmdastjóra af Helga Gíslasyni, sem ráðinn hefur verið sveitarstjóri Fljótsdalshrepps. Skógræktarfélag Reykjavíkur eru félagasamtök með nær 2.000 félagsmenn. Upplýsingar um félagið og starfsemina má nálgast á www.heidmork.is.