Fangelsinu á Akureyri verður lokað samkvæmt tilkynningu Stjórnarráðið gaf út í dag. Um er að ræða eina tillögu starfshóps dómsmálaráðherra til að stytta biðlista eftir fangelsisafplánun. Nýja fangelsið að Hólmsheiði hafi ekki verið fullnýtt til þessa þar sem fjármagn skorti. Með því að að loka fangelsinu á Akureyri fáist betri nýting á fjármagni og því kostur til að fjölga afplánunarrýmum annar staðar.
„Fangelsið á Akureyri er minnsta rekstrareining Fangelsismálastofnunar en þar eru vistaðir 8-10 fangar að jafnaði. Með lokun fangelsisins er hægt að nýta fjármuni á mun betri hátt en kostnaður við hvert fangapláss á Litla-Hrauni og á Hólmsheiði er mun lægri en á Akureyri vegna samlegðaráhrifa við önnur fangelsi,“ segir í tilkynningu.
Samkvæmt tilkynningu verður ávinningurinn af lokuninni margþættur. Boðunarlisti og fyrningar refsinga geti lækkað, betri nýting verði á afplánunarrýmum og unnt að mæta hagræðingarkröfum á milli ára. Eins verði hægt að mæta húsnæðisvanda lögreglunnar á Akureyri þar sem embættið sé staðsett í sama húsnæði og fangelsið.