„Ætlar forsætisráðherra og formaður VG, sem hefur viljað kenna sig við jafnrétti og femínisma, að láta það líðast að menntamálaráðherra í ríkisstjórn hennar brjóti jafnréttislög,“ spyr Inga Sæland, þingmaður Flokks fólksins í færslu á Facebook.
Braut gegn jafnréttislögum
Inga vísar þar til ráðningar Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, á Páli Magnússyni sem ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins. Lilja hefur hafnað því að ráðningin tengist tengslum Páls við Framsóknarflokkinn en kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að jafnréttislög hafi verið brotin.
Lilja hefur vísað í það að hæfisnefnd hafi skilað niðurstöðu sem sem farið hafi verið eftir, en kærunefnd jafnréttismála telur ýmsa annmarka á hæfnismatinu.
Eins greindi RÚV frá því í gær að Lilja hafi farið gegn tillögu sérfræðinga í menntamálaráðuneytinu þegar Einar Hugi Bjarnason, framsóknarmaður, var ráðinn sem formaður fjölmiðlanefndar í nóvember.
Lilja eigi að segja af sér
Inga telur að Lilja eigi að segja af sér vegna þessa.
„Framsóknarmaður ráðinn ráðuneytisstjóri af Framsóknarráðherranum sem talin er hafa brotið jafnréttislög með ráðningunni. Sigríður Á. Andersen var látin taka pokann sinn úr ráðuneyti dómsmála fyrir að hafa brotið lög varðandi ráðningar dómara við Landsrétt. Hanna Birna þurfti líka að yfirgefa sinn ráðherrastól vegna Lekamálsins svo kallaða. Er einhver sýnilegur eðlismunur á þessu máli um viðurkennt brot ráðherra á jafnréttislöggjöfinni, sem gæti mögulega slegið skjaldborg um Menntamálaráðherrann?“
Inga er ekki sammála því, sem Lilja hélt fram í samtali við RÚV, að hæfasta fólkið væri ávallt ráðið. Það sé flokkspólitíkin sem vegi þyngra.
„Ráðherrann ítrekar í viðtalinu : Hæfasta fólkið ráðið, hæfasta fólkið ráðið, HÆFASTA FÓLKIÐ RÁÐIÐ…
NEI Framsóknarmenn eru ráðnir af Framsóknarráðherranum, það er ekki flóknara en það. Sama gamla spillingarkerfið blómstrar hér sem aldrei fyrr. Framsóknarmaður ráðinn sem formaður fjölmiðlanefndar þrátt fyrir að hæfari einstaklingur hafi sótt um starfið. Sami formaður fjölmiðlanefndar hefur skreytt stjórnarformennsku 8 nefnda í boði Framsóknarflokksins.“