Harðlega hefur verið gagnrýnt undanfarna daga að sérstakur vaktaálagsauki hafi verið numinn af hjúkrunarfræðingum mitt í COVID-faraldri og að kjarasamningar þeirra hafi verið lausir í rúmt ár. Tillaga um álagsgreiðslur til heilbrigðisstarfsmanna var felld um helgina en nú hefur forstjóri Landspítala lagt fram við heilbrigðisyfirvöld að greiða sérstaka umbun til starfsmanna sökum álags.
Landspítali leggur til álagsgreiðslur
Á fundi almannavarnarteymis ríkislögreglustjóra í dag greindi Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans frá því að stjórn Landspítala hafi sent yfirvöldum bréf þar sem áhyggjum er lýst yfir vegna stöðu hjúkrunarfræðinga og kjarasamninga þeirra. Eins hafi verið sent bréf á heilbrigðisyfirvalda með tillögu að sérstakri umbun til heilbrigðisstarfsfólks.
Tillaga áður felld á Alþingi
Það var hins vegar aðeins örfáir dagar síðan tillaga um sérstaka álagsgreiðslu til heilbrigðisstarfsmanna var felld á Alþingi. Í sameiginlegri breytingatillögu sem var lögð frá af þingmönnunum Ágústi Ólafi Ágústssyni, Birgi Þórarinssyni, Birni Leví Gunnarssyni, Ingu Sæland og Þorsteini Víglundssyni var lagt til að starfsfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu yrði greidd 200.000 króna eingreiðsla vegna álags. Tillagan var hins vegar felld.
Allir þingmenn Vinstri Grænna kusu nei
Í samtali við DV segir Ágúst Ólafur að þessar greiðslur þekkist annars staðar í heiminum.
„Við lögðum til að vegna ótrúlegs álags að greidd yrði sérstök 200.000 kr. eingreiðsla til þess starfsfólks í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem hefur unnið við umönnun COVID-smitaðra sjúklinga. Fjölmörg önnur ríki hafa farið þessa leið sem er svo sjálfsögð. En þrátt fyrir það kaus hver einasti þingmaður VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks gegn þessari tillögu í vikunni.“
„Af öllum tímum og af öllum stéttum finnst stjórnarþingmönnum rétt að ýta á nei-hnappinn. Mér finnst þetta vera virkilega nöturleg skilaboð frá þessum þremur flokkum á Alþingi til fólks sem er bókstaflega að leggja sig í hættu við bjarga heilsu og lífi almennings. Til viðbótar hafa hjúkrunarfræðingar og aðrar heilbrigðisstéttir ekki fengið kjarasamning við þessa sömu ríkisstjórn og vaktagreiðslur hjúkrunarfræðinga dottið út.“
„Núna í skugga heimsfaraldurs hefði maður haldið að ríkistjórnarflokkarnir gætu risið upp úr pólitískum skotgröfum. Samfylkingin studdi allar tillögur ríkisstjórnarinnar en þetta sama fólk kaus gegn öllum tillögum sem við komum með frá stjórnarandstöðunni sem 47% af þjóðinni kaus síðast. Merkilegt hvað sumum finnst samstarf og samvinna eigi í raun bara að virka í aðra átt.“
Aðspurður hvort hann telji líklegt að ríkisstjórnin endurskoði ákvörðun sína nú þegar Landspítalinn hefur einnig lagt hana til segir hann innilega vona það.
„Ég vona það svo sannarlega. Við inn á Alþingi gáfum að minnsta kosti ríkisstjórninni að gera slíkt fyrr í vikunni. Því tækifæri var hafnað en ég vona að okkar þrýstingur og annarra hafi áhrif og að þetta fólk í ríkisstjórn sjái að sér.“
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og einn þeirra sem lögðu fram tillöguna telur ástæðu þess að hún var felld flókna. Um fjárveitingamál sé að ræða og þau geti verið flókin. Einhverjir þingmenn gætu séð eftir því að fella hana en aðrir munu að líkindum ekki gera það. Með þessu telur Björn engin skilaboð send til framlínu fólks landsins í heilbrigðisþjónustunni, en stjórnarþingmenn hafi jafnvel rætt um að taka slíka ákvörðun eftir á.