Ragnhildur Sverrisdóttir hefur verið ráðin sem upplýsingafulltrúi og sérfræðingur í samskiptum hjá Landsvirkjun. Ragnhildur verður jafnframt staðgengill Magnúsar Þórs Gylfasonar, forstöðumanns samskipta, samkvæmt frétt á veg Landsvirkjunar.
Ragnhildur kemur til Landsvirkjunar frá fjárfestingafélaginu Novator þar sem hún hefur starfað sem upplýsingafulltrúi frá árinu 2010. Ragnhildur starfaði um árabil við blaðamennsku á Morgunblaðinu, við innlend fréttaskrif og fréttastjórn, sem og greinaskrif og umsjón Sunnudagsblaðs. Ragnhildur er með BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík frá árinu 2006.