Gunnar Birgisson, fyrrverandi alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og bæjarstjóri Kópvogs og Fjallabyggðar, hefur verið ráðinn sveitastjóri í Skaftárhreppi. Morgunblaðið greinir frá.
Gunnar, sem hætti sem bæjarstjóri Fjallabyggðar í um mánaðarmótin nóvember/desember í fyrra vegna heilsubrests, er ráðinn tímabundið í tvo mánuði þar sem Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitastjóri til síðustu ára, er í veikindaleyfi. Tekur hann við af Evu Björk Harðardóttur, oddvita í hreppnum, sem hefur gegnt starfinu frá áramótum.
„Ég fór í tékk hjá lækni og heilsan er góð. Fyrir austan eru næg verkefni eins og jafnan í rekstri sveitarfélags, en þarna kem ég inn sem ráðgjafi meðan sveitarstjórinn er leyfi,“
segir Gunnar við Morgunblaðið.
Gunnar varð 72 ára í nóvember en hann gaf út ævisögu sína árið 2017, sem Orri Páll Ormarsson reit.