Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, skrifa grein á Vísi í dag hvar kafað er ofan í hagnað viðskiptabankanna þriggja frá hruni, sem er sagður um 650 milljarðar króna.
„Stór hluti þessa hagnaðar bankanna er vegna ólöglegra lána og/eða ólöglegra aðgerða gagnvart lántakendum á árunum eftir hrun. Það er staðreynd að hagnaður bankanna byggir á hruni heimila landsins!“
segir í greininni.
Í greininni er sagt að hagnaður bankanna hafi skaðleg áhrif á heilsu fólks þar sem að álagið sem fylgdi heimilismissi fólks í hruninu hafi komið í ljós í með auknum kvíða og öðrum álagssjúkdómum og að hagnaður bankanna hafi skaðleg áhrif á þjóðfélagið:
„Við horfum á kvíða og kulnun aukast í þjóðfélaginu í mæli sem ekki hefur sést áður. Álagið sem fylgir slæmri skuldastöðu og því að sjá aldrei fram á bjartari tíma, er verulega slítandi og skapar gríðarlegt álag á bæði einstaklinga og heimili.Á 15.000 heimilum búa a.m.k. 45.000 einstaklingar; konur, menn og börn. Halda ráðamenn þessa lands að álag sem fylgir heimilismissi komi ekki einhversstaðar niður? Af hverju ætli aukning margs konar álagssjúkdóma hafi verið fordæmalaus á síðustu árum? Og hvað með börnin?“
Í greinninni er einnig fullyrt að hagnaðurinn komi ekki til vegna ábátasamra fjárfestinga eða klókinda í fjármálum:
„Þetta fé kemur frá heimilum landsins. Það kemur frá almenningi, fólkinu sem berst við að koma sér þaki yfir höfuðið og lifa af í landi sem tekur banka og „velferð“ þeirra fram yfir velferð fólksins í landinu.“
Þá setja þau Ragnar og Ásthildur tölurnar í samhengi við fólksfjölda:
– Íslendingar eru nær 360.000
– Heimili á Íslandi eru um 140.000
– Heimili sem bankarnir hafa „hirt“ af fjölskyldum landsins frá hruni eru a.m.k. 15.000
– Hagnaður bankanna er 650.000.000.000Sé gengið út frá þessum forsendum þýðir þetta:
– 1,8 milljónir á mann, ef allir íslendingar, að börnum meðtöldum, hafa lagt jafn mikið til þessa hagnaðar bankanna á undanförnum 10 árum
– 4,6 milljónir á hvert heimili, ef öll heimili hafa lagt jafn mikið til þessa hagnaðar bankanna á undanförnum 10 árum
– 43 milljónir í hagnað frá hverju þessara 15.000 heimila sem bankarnir hafa „hirt“ frá hruni, að meðaltali.
Þau Ragnar og Ásthildur kalla eftir rannsóknarskýrslu heimilanna, svo greina megi tölurnar betur, þar sem ekki sé allt 100% nákvæmt:
„En málið er að þetta eru ekki 1,8 milljónir á mann, því þá myndi kannski heyrast hærra í fleirum. Þessu var ekki „skipt jafnt“ á milli okkar allra og við höfum ekki öll fundið jafn mikið fyrir þessu og kannski er það þess vegna sem svo mörgum finnst þetta bara fínt og sjá ekkert athugavert við þennan ofsagróða. Stór hluti þjóðarinnar hefur nefnilega sem betur fer sloppið betur og þar af leiðandi lagt hlutfallslega lítið til í þessa hít.
Megnið af þessum ofsagróða kemur frá um 20% þjóðarinnar, um 70 þúsund manns. Það gera um 9 milljónir á hvert og eitt þeirra. Sá hluti þjóðarinnar er ekki eins sáttur og finnst „byrðunum“ vægast sagt misskipt.“Bankarnir hafa hagnast um 650 milljarða frá hruni!
—————————————-
Hafi allir lagt jafn mikil til eru þetta:
– 1,8 milljónir á mann
– 4,6 milljónir á hvert heimili
– 43 milljónir í hagnað frá hverju þeirra 15.000 heimila sem bankarnir hafa „hirt“ frá hruni
—————————————-
Getur þetta talist eðlilegt?!
spyr Ásthildur á Facebook