Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir á heimasíðu sinni í dag að „hér og þar“ séu á kreiki hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar. Þetta segir Styrmir í framhaldi af umræðunni um bíla- og umferðarmálin í Reykjavík og verður ekki skilið öðruvísi en um gagnrýni á núverandi borgaryfirvöld sé að ræða.
„Það er nokkuð ljóst af almanna umtali, að borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavíká erfiða dagaframundan. Það er fyrst og fremst umferðaröngþveitið á höfuðborgarsvæðinu, sem þar kemur við sögu en jafnframt er ljóst að alla vega ímyndborgarkerfisins, þ.e. stjórnkerfis borgarinnar hefur versnað mjög.
Sumir almennir borgarar eru sannfærðir um að núverandi meirihluti muni bíða afhroð í næstu kosningum. Það er ekki endilega vísbending um að minnihlutaflokkarnirmuni njóta þess að öllu leyti, því að hér og þar eru á kreiki hugmyndir um ný framboð til borgarstjórnar.
Líklegt má telja að þeir flokkar eða framboð, sem leggja fram trúverðugar tillögur um lausn á umferðaröngþveitinu mundu uppskera í ríkum mæli í kosningum.“