fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Segir Bjarna með silfurskeið í munni og kallar Áslaugu og Þórdísi puntdúkkur: „Þetta er sorgarsaga“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 8. september 2019 11:55

Ragnar Önundarson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„„Forréttindablinda” felst í því að láta hagsmuni sína ráða og þiggja eitthvað sem ekki væri í boði án forréttindanna,“ segir Ragnar Önundarson, fyrrverandi bankastjóri, í pistli sem birtist á Facebook í gær, þar sem hann sakar forystu Sjálfstæðisflokksins um forréttindablindu og að skipa puntdúkkur í ráðherraembætti.

Bara því þær eru konur

Í pistlinum heldur Ragnar því fram að bæði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi fengið ráðherrastóla sína fyrir það eitt að vera konur.

„Þórdís K. R. Gylfadóttir þáði ráðherraembætti þrátt fyrir að vera númer tvö á framboðslista flokks síns. Formaðurinn vildi konu af því að hann hélt að ásýnd vægi meira en innihald. Þegar staða varaformanns losnaði stökk hún til og lýsti yfir framboði. Aðrir viku fyrir henni ,,af því að hún er kona” og vitað var að ásýndin skiptir formanninn meira máli en innihaldið. Metnaðurinn er svo mikill að litið er fram hjá því að varaformaður sem ekki hefur burði til að vera formaður lendir í pínlegri stöðu þegar gengið verður fram hjá honum í formannskjöri.“

Hann segir Áslaugu hafa verið skipaða ritara Sjálfstæðisflokksins til að friða það sem Ragnar kallar „stuttbuxnadeildina“.

„Nú hefur formaðurinn gert hana að ráðherra, til að flokkurinn sýnist ,,frjálslyndur” (frjálshyggja er nú orðið ljótt orð, sem ekki er lengur flaggað) og höfði til ungs fólks. Hún er ,,fulltrúi ungu kynslóðarinnar”, sem einu sinni var kosið um í Tónabæ.“

Flokkurinn óheppinn í kvennamálum

Ragnar segir að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að taka til í innviðum sínum og hverfa aftur til tíma þar sem styrkur skipti meira máli en ásýnd út á við. Slæmu ástandi flokksins megi kenna Bjarna Benediktssyni, formanni flokksins, um. Flokkurinn hafi verið óheppinn í kvennamálum. Öflugasta kona flokksins, Ólöf Nordal, sé því miður fallin frá en aðrar konur flokksins hafi hrökklast frá embættum vegna mistaka sem reyndari stjórnmálamenn hefðu aldrei gert. Vísar Ragnar þá líklega til fyrrverandi dómsmálaráðherra Sigríðar Á. Andersen og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra.

„Munu þær tvær ungu konur sem formaðurinn hefur fyrir ,,puntudúkkur”, ásýndarinnar vegna, reynast betur ? Getur ekki verið að þær séu haldnar ,,forréttindablindu” ? Getur ekki verið að það sé betra að sýna þolinmæði og bíða og afla sér starfs- og lífsreynslu ?“

Bjarni með silfurskeið í munninum

Ragnar segir svo að það sé Bjarni sjálfur, með silfurskeiðina í munninum, sem haldinn er mestri forréttindablindu.

„Hann fór fyrst inn á þing án prófkjörs. Þar naut hann ólýðræðislegs ættarveldis. Þátttaka þeirra frænda í hrunsmálum, sem leiddu til stórfelldra áfalla í viðskiptalífinu, hefur skyggt á öll hans störf og sífellt vakið grunsemdir um hagsmunatengsl og forréttindaaðstöðu. Fylgi flokksins hefur nær helmingast í alþingis-kosningum, þó það hafi haldið sér nokkuð vel í sveitarstjórnarkosningum. Það bendir til að margir bíði á hliðarlínunni eftir breytingum.“

Að endingu minnir Ragnar á að flokksforysta Sjálfstæðisflokksins hafi gengið þvert gegn vilja stórs hluta flokksbundinna félagsmanna þegar orkupakkinn var samþykktur.

„Öll hafa þau þrjú komið að þessu erfiða máli, ekkert þeirra náði að skynja hug flokksmanna og leita ásættanlegra lausna. Þetta er sorgarsaga. Kannski er ,,forréttindablindan” helsta vandamálið ?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus