„Líkt og kom fram í fréttum í gær þá var bætt við málsgrein í drög að samkomulagi um höfuðborgarpakkann um tengingu við Sundabraut. Nokkrir möguleikar koma til greina um hvar og hvernig best sé að leggja hana og hvernig megi auðvelda umferð á milli miðborgar og Grafarvogs, létta á umferð á höfuðborgarsvæðinu og stytta leiðir út á land. Tveir valkostir eru einkum taldir koma til greina,“
segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra um væntanlegar endurbætur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Mikið hefur verið fundað um málið síðustu daga og virðast hlutirnir gerast hratt og virðast sveitarstjórnarmenn ekki vissir um hvað þeir megi tjá sig um í áætluninni og hvað ekki, þar sem óvissa ríki um trúnað, líkt og RÚV greinir frá.
Valkostirnir eru annarsvegar jarðgöng og hinsvegar lágbrú:
„Annars vegar jarðgöng í Gufunes sem miðast við núgildandi skipulag og hins vegar lágbrú yfir Kleppsvík yfir á Holtaveg sem kallar á breytt skipulag á hafnarstarfssemi. Ég hef áður sagt að lágbrú yfir Kleppsvík sé fýsilegri kostur en jarðgöng. Bæði er hún ódýrari, henti fyrir alla samgöngumáta, þ.e. bílandi, almenningssamgöngur, gangangi og hjólandi. Síðari áfangi Sundabrautar mun síðan ná frá Gufunesi um Geldinganes, yfir Leiruvog, Gunnunes, Álfsnes og Kollafjörð að tengingu við Vesturlandsveg. Næstu skref snúa að frekari viðræðum við Faxaflóahafnir og skipulagsyfirvöld í borginni.“