Nýsköpunarfyrirtækið Flow hefur hafið kynningu og sölu á hugleiðsluhugbúnaði sem nýtir Oculus Go sýndarveruleikagleraugu. Með því að setja gleraugun á sig getur einstaklingurinn hugleitt með hjálp tónlistar og mynda úr íslenskri náttúru. Markaðssetningin miðast ekki síst við íslensk fyrirtæki enn sem komið er og segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Flow, að viðtökurnar hafi verið ótrúlega góðar. Búnaðurinn geri það að verkum að hægt sé að hugleiða nánast hvar sem er, auk þess sem hann mun líka tengjast snjallúrum, þar sem streita, hjartsláttur og fleiri þættir verða mældir. Þannig verði auðvelt að fylgjast með líðan og heilsu í þjóðfélagi sem er sífellt meira krefjandi.