fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Styrmir á ekki von á að Guðni forseti beiti sér í orkupakkamálinu

Egill Helgason
Sunnudaginn 1. september 2019 18:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Styrmir Gunnarsson var einn af gestunum í fyrsta þætti Silfursins á haustvertíð. Í þættinum var einkum rætt um alþjóðamál, komu Mike Pence varaforseta til Íslands og vaxandi umsvif stórvelda á Norðurslóðum. Eftir langa setu á ritstjórastól Morgunblaðsins þekkja fáir menn samskipti Íslands og Bandaríkjanna betur en Styrmir.

En orkupakkan bar líka á góma. Forsvarsmenn Orkunnar okkar, með Styrmi í för, fóru á fund Guðna Th. Jóhannessonar forseta fyrir fáum dögum og skoruðu á hann að staðfesta ekki upptöku þriðja orkupakkans. Ég spurði Styrmi hvort hann ætti ætti von á því að Guðni myndi beita sér í málinu og hann sagðist ekki eiga von á því. Þeir hefðu bara átt „huggulegt spjall“ við forsetann en ekkert meira.

Styrmir kvað nei við. Hann sagðist ekki búast við því að forsetinn gripi í taumana varðandi orkupakkann.  Hann tók þó fram að hann teldi að baráttunni yrði ekki lokið eftir atkvæðagreiðsluna á morgun, hún myndi bara taka á sig aðrar myndir, bæði almennt og innan einstakra flokka.

Hér má horfa á Silfrið, í seinni hluta þess er viðtal við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun