fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Katrín Jakobsdóttir: „Lagði áherslu á að nú þyrftu ríki að taka sig saman og komast aftur á rétta braut“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 4. desember 2019 16:32

Katrín Jakobsdóttir ásamt Jens Stoltenberg framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands. Mynd-Nato

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisráðherra ræddi afvopnunarmál, loftslagsbreytingar og kynferðislegt ofbeldi á fundi leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í dag. Á meðal umfjöllunarefna fundarins voru áskoranir í öryggis- og varnarmálum, netógnir, baráttan gegn hryðjuverkum, útgjöld bandalagsríkjanna til varnarmála, samskiptin við Rússland og horfur í afvopnunarmálum, samkvæmt tilkynningu.

Í innleggi sínu lagði forsætisráðherra áherslu á afvopnunarmál og að styrkja þyrfti alþjóðlega samninga á því sviði, fremur en að veikja þá eins og reyndin er. Forsætisráðherra fjallaði einnig um loftslagsbreytingar sem eitt stærsta öryggismál samtímans sem þyrfti að taka á í stefnu bandalagsins. Þá tók forsætisráðherra undir mikilvægi nýrrar stefnu bandalagsins gegn kynferðislegu ofbeldi og áreitni og áréttaði mikilvægi þess að fjallað væri um ofbeldi gegn konum í sambandi við öryggis- og varnarmál.

„Afvopnunarmál voru rædd á fundinum og lýstu margir áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin í kjölfar ógildingar INF-samningsins sem tekur á útbreiðslu kjarnorkuvopna. Við erum að sjá bakslag í afvopnunarmálum sem skapar ógn við alla heimsbyggðina. Ég lagði áherslu á að nú þyrftu ríki að taka sig saman og komast aftur á rétta braut. Ég fjallaði um frið og stöðugleika í Norður-Atlantshafi á fundinum og um loftslagsbreytingar og ofbeldi gegn konum. Vísaði ég sérstaklega til #metoo-hreyfingarinnar. Við vitum að ofbeldi gegn konum margfaldast á ófriðartímum og nauðganir eru þekkt vopn í stríði. Þennan veruleika verður Atlantshafsbandalagið að taka alvarlega; í stefnumótun, innan allra sinna stofnana og á fundum leiðtoga“

sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

Forsætisráðherra átti jafnframt fund með Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, þar sem fjallað var um stjórnmálaástandið, málefni Katalóníu og alþjóðasamvinnu. Utanríkisráðherra átti fund með Stef Blok, utanríkisráðherra Hollands, þar sem tvíhliða samskipti, málefni norðurslóða og alþjóðamál voru efst á baugi.

Þá sóttu forsætisráðherra og utanríkisráðherra hátíðarmóttöku í Buckingham-höll í boði Elísabetar II Bretadrottningar í gær. Forsætisráðherra var svo gestur í móttöku í Downingstræti 10 í boði forsætisráðherra Bretlands, í tilefni af sjötíu ára afmæli Atlantshafsbandalagsins en utanríkisráðherra sótti kvöldverð í boði Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt