fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Kristján Þór lofar óháðri rannsókn – „Stórtíðindi“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. desember 2019 14:03

Kristján Þór Júlíusson. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið fjallað um verðmuninn á makríl eftir því hvort honum sé landað á Íslandi eða í Noregi. Hafa þeir Kári Stefánsson og Vilhjálmur Birgisson fjallað um málið og kallað eftir rannsókn á því hverju þetta sæti.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra, sagði í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag á Alþingi að málið yrði rannsakað af óháðum aðila og málið væri komið í ferli og yrði kynnt nánar á næsta ári:

„Við höfum rætt það innan sjávarútvegsráðuneytisins, sérstaklega í tengslum við athugasemdir sem komu frá Verkalýðsfélagi Akraness að efna þar til sérstakrar vinnu sem ég vænti að ég geti kynnt fljótlega á næsta ári, en það er komið í ákveðið ferli, en það miðast við að þar verði óháð rannsókn sem leiði í ljós einhverjar skýringar á þessum verðmun sem hefur verið hér á Íslandi. Ég get tekið undir að mikilvægi þess að gerð verði hlutlæg athugun sem leggi þá niðurstöðu fyrir Alþingi.“

Stórtíðindi

Vilhjálmur Birgisson segir þetta stórtíðindi en gæta þurfi algers hlutleysis við rannsóknina:

„Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag urðu að mínu áliti stórtíðindi, en í þessum óundirbúna fyrirspurnartíma spurði Logi Einarsson sjávarútvegsráðherra um þann gríðarlega verðmun á milli Íslands og Noregs á makríl. / Ég sem formaður Verkalýðsfélags Akraness fagna þessu innilega en ítreka að hér þurfa algerlega óháðir aðilar að koma að þessari rannsókn og hún þarf að vera hafin yfir allan vafa og að gætt sé algers hlutleysis og þessi óháða rannsóknarnefnd þarf að hafa víðtækar heimildir til gagnaöflunar.“

Betra seint en aldrei

Vilhjálmur minnir á að hann lagði slíka tillögu fram sjálfur í kjaraviðræðum við útgerðarmenn árið 2017, að rannsakaður yrði hinn gríðarlegi verðmunur á uppsjávarafla milli Íslands, Noregs og Færeyja:

„Það er skemmst frá því að segja að útgerðamenn sem áttu sæti í þessari samninganefnd sturluðust yfir þessari tillögu og höfnuðu henni alfarið.“

Vilhjálmur hrósar nú sigri og vill hafa aðkomu að hinni óháðu rannsóknarnefnd:

„Nú hefur þessi barátta Verkalýðsfélags Akraness þó skilað því að Sjávarútvegsráðuneytið hefur í hyggju að skipa þessa óháðu rannsóknarnefnd en ég ítreka að sú nefnd þarf að vera hafin yfir allan vafa um algert hlutleysi. Ég legg til að við í sjómannaforystunni og Alþingi fáum aðkomu að því að velja þessa nefnd og setja henni starfsskilyrði þannig yrði komið veg í fyrir tortryggni hvað hlutleysi varðar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn