fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Segir Bjarna Ben vera óheiðarlegan siðblindan raðlygara – „Þá er ótalin barnaníðingshátíðin sem flokkurinn hélt“

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 8. desember 2019 10:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlahöfundurinn Bragi Páll Sigurðsson hefur lengi verið þekktur fyrir beitta pistla sína en hann hélt í gær ræðu á Austurvelli sem var engin undantekning. Ræðan var flutt á mótmælafundinum Lýðræði en ekki auðræði – Auðlindarnar aftur í okkar hendur sem haldinn var í gær. Ræðan var birt í heild sinni á Vísi.

„Fáum eitt algjörlega á hreint hérna: Sjálfstæðisflokkurinn er krabbamein,“ sagði Bragi til að byrja ræðuna. „Er það ekki alveg hreint ótrúleg tilviljun, að hvert einasta hneykslismál sem gengur yfir Ísland tengist flokknum á einhvern hátt. Og í hvert einasta skipti sem spillingar-sletturnar frussast yfir okkur, eins og gosbrunnur tengdur við rotþró, reyna flokkshollir eftir fremsta megni að hunsa málið, láta ekki ná í sig, gera svo lítið úr því og að lokum að ljúga, fram í bláan dauðan. Ég ætla að endurtaka, öll hneykslismál, allir skandalar, öll spilling á Íslandi tengist Sjálfstæðisflokknum á einn eða annan hátt.“

Bragi sagði að það væri eðlilegt ef heiðarlegir einstaklingar innan flokksins myndu „átta sig á því hverskonar mafíu þeir tilheyra“ og fara í sjálfsskoðun vegna þessa. „En nei. Aldrei í jarðarsögunni hefur krabbamein farið í sjálfsskoðun. Sjálfstæðisflokkurinn er þar engin undantekning,“ sagði Bragi. „Í kjölfar hrunsins munaði reyndar minnstu að flokkurinn viðurkenndi fortíð sína, þegar þau héldu landsfund í ársbyrjun 2009. Í nokkrar vikur hafði endurreisnarnefnd flokksins verið að störfum, við það að rýna miskunnarlaust í hvaða mistök forysta flokksins hefði gert, sem hefðu leitt til hrunsins. Aðeins að kíkja í bleyjuna.“

Hann sagði þá Davíð Oddsson, „andlegann leiðtoga gráðugra frekjukarla á Íslandi“, hafa mætt upp í pontu og tilkynnt það hátt og snjallt að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti ekki að fara í neina naflaskoðun vegna þessa. „Þessi endurreisnarnefnd og allt hennar pakk gæti bara fokkað sér. Vinur hans, Hannes Hólmsteinn tók sér svo áratug í að komast að nákvæmlega sömu niðurstöðu. Og þetta kokgleyptu stígvélasleikjurnar. Flokkurinn var fullkominn. Ekkert að sjá hér, nema náttúrulega rauðþrútinn

„Og þá er ótalin barnaníðingshátíðin sem flokkurinn hélt“

Næst hjólar Bragi í Bjarna Ben fjármálaráðherra. „Það er ákveðið afrek að vera með fjármálaráðherra sem er svona vonlaus í viðskiptum,“ sagði Bragi. „Öll fyrirtæki sem hann stýrði fyrir hrun fóru á hausinn, og þetta voru ekkert einhver „úbs, ég gerði smá gjaldþrot hérna.“ Það þurfti afskrifa um 130 milljarða króna af skuldum þeirra. Það er sko ógeðslega mikill peningur! Til samanburðar kostar íslenska heilbrigðiskerfið 200 milljarða á ári!“

„Svo eru það skýrslurnar sem Bjarni kæfði, framhjáhaldsvefirnir sem hann var skráður á, skattaparadísirnar sem hann þvertók fyrir að stunda viðskipti á, gögnin því tengdu sem hann tafði að ríkisskattstjóri gæti keypt, frændi hans að kaupa Borgun á undirverði, vafasömu viðskiptin hans með innherjaupplýsingar í aðdraganda hrunsins. Flétturnar, lygarnar. Þvættingurinn og undirferlið. Fyrir utan allt klúðrið sem hefur gerst á hans vakt.“

Bragi vakti því næst athygli á því að þrír ráðherrar Bjarna Ben hafa sagt af sér eða hætt þingstörfum vegna spillingar á meðan Bjarni hefur verið formaður. „Hanna Birna, Illugi Gunnarsson og Sigríður „Á-ekki-að-verá-þingi” Andersen,“ sagði hann og bbenti á að allan tímann hafi Bjarni gert lítið úr afbrotum þeirra. „Og þá er ótalin barnaníðingshátíðin sem flokkurinn hélt, þar sem allir barnaníðingar sem skráðu sig í flokkinn fengu uppreista æru og sleikjó, sumir hverjir í boði Benedikts, föður Bjarna. Já og Bjarni reyndi að leyna því líka, en það sprakk í andlitið á honum- og ríkisstjórnin hans féll í kjölfarið.“

„Þennan söng sjáum við nú í þessu Samherjamáli“

„Og þetta er bara bara best-of síðustu ára,“ sagði Bragi og talaði því næst um málin sem hafa gerst síðastliðna mánuði. Hann talaði um útlendingastofnun sem hefur undanfarið hent hverri saklausu barnafjölskyldunni úr landi á eftir annarri undir stjórn „vonarstjörnunnar“ Áslaugar Örnu. Einnig nefndi hann mál Haralds Johannessen sem hótaði að leka viðkvæmum upplýsingum ef honum yrði vikið úr starfi. „Svo frekar en að vera rekinn er honum stjakað úr embætti með fangið fullt af milljónum. Vissulega mjög sorglegt fyrir Harald en vonandi getur hann þurrkað krókódílatárin með öllum seðlunum sínum.“

„Í öllum þessum uppákomum syngja flokksmenn sjálfstæðiskórsins sama sönginn. Gaslýsa þjóðina. Nei, þetta gerðist ekki. Ef þetta gerðist áttirðu það skilið. Ljúga eins langt og Gosa-nefið á þeim nær. Og þennan söng sjáum við nú í þessu Samherjamáli, þar sem Bjarni fékk sjálfur að koma með punchline-ið, að svona væru viðskipti einfaldlega í Namibíu. En þar er Bjarni ekki að segja satt frekar en fyrri daginn- eða nóttina. Bjarni Benediktsson er nefnilega svo óheiðarlegur að ég er viss um að hroturnar hans eru líka lygar. Tveir ráðherrar hafa sagt af sér í Namibíu, að sögn til þess að viðhalda trúverðugleika á stjórnmálum landsins. Handtökur á grunuðum eru hafnar. Á Íslandi segir enginn af sér. Nei, á Íslandi hringir Kristján Þór, sjávarútvegsráðherra, í Þorstein Má, höfuðpaur skandalsins, og spyr: sæll elskan, hvernig hefuru það?“

„Ég ætla að stafa þetta ofan í ykkur“

Þá tók Bragi fyrir Eyþór Arnalds, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. „Og að sjálfsögðu er þrútnasti trúðurinn af þeim öllum, Eyþór Arnalds, vel flæktur í net Samherjamanna,“ sagði hann. „Hugsjónalausasti ljósastauramorðingi allra tíma, sem söng „Þetta fullorðna fólk er svo skrítið“ varð svo á endanum skrítnasta fullorðna manneskja allra tíma. Athugum að Eyþór eignaðist hlut sinn í Mogganum í gegnum mjög vafasama kúlulánafléttu Samherja, sem átti viðkomu í félaginu Esja Seafood á Kýpur, sem er þungamiðjan í mútugreiðslum Samherjaskandalsins.“

„Ég ætla að stafa þetta ofan í ykkur. Samherji gaf Eyþóri Arnalds 225 miljónir, svo hann gæti orðið stærsti eigandi Moggans. Og áróðurspésinn Morgunblaðið heldur bara áfram að koma út, hriplekandi útgerðarpeningum, með senílum KuKluxKlan pistlum Davíðs Oddsonar og sprenghlægilegum rasista-teikningum Helga Sigurðarsonar. Og Eyþór Arnalds situr sem fastast, sem oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Þetta væri náttúrulega sprenghlægilegt ef þetta væri ekki svona fullkomlega ömurlegt.“

Bragi sagði næstu kynslóð „jakkalakka“ bíða graða í röðum handan við hornið til að halda auðráninu áfram. „Formaður og varaformaður SUS eru börn núverandi þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Dóttir Árna Mathiesen er formaður og sonur Páls Magnússonar er varaformaður,“ sagði Bragi. „Hann skrifaði einmitt BA-ritgerð um Jón Steinar, með hjálp Jóns Steinars, um hvað allir séu alltaf vondir við greyið Jón Steinar. Þessir krakkar eru algjört met! En þetta er ekki þeim að kenna. Ef fyrirmyndirnar þínar eru gjörspilltir mafíósar er ósennilegt að þú breytist í talsmann nýrra tíma með breyttum vinnubrögðum.“

Bragi sagði þá að ekkert væri að fara að breytast þegar kemur að flokknum. „Ungur nemur gamall stelur,“ sagði hann og veltir því fyrir sér af hverju þau ættu líka að breyta einhverju. „Sjallar eru alltaf í ríkisstjórn. Eiga öll dómstigin, allt embættismannakerfið, stærstu fyrirtækin, allan kvótann, fasteignir. Allt!“

„Sjálfstæðisflokkurinn á Ísland og er mjög meðvitaður um það. Eins og persónuleikaraskaður ofbeldismaður sem tekur aldrei ábyrgð og gaslýsir fórnarlömbin sín. En það er alveg sama hversu unglegar og lekkert grímur krabbameinið setur upp, það er jafn banvænt fyrir því. Það er alveg sama hversu ungur dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins er, hún er jafn mikill fasisti fyrir því. Og það er alveg sama hversu margar kökur Bjarni Ben skreytir með sykurmassa, hann er jafn siðblindur rað-lygari fyrir því.“

Bragi botnaði ræðuna með því að velta því fyrir sér hvað landsmenn ættu að gera í þessu. „Ég veit allavega hvað ég ætla að gera,“ sagði hann. „Kalla hlutina sínum réttum nöfnum. Og héðan í frá ætla ég að tala um mafíusamtökin Sjálfstæðisflokkinn sem bláa krabbameinið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun