fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Það sýður á Katrínu: „Hann Sigurður er aumingi“

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 7. desember 2019 16:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Annan hvern dag leitar kona til Landspítalans vegna þess að hún hefur verið lamin heima hjá sér. Og þetta er bara toppurinn á ísjakanum, því svo mikið af þessu ofbeldi er falið.“

Svona hefst pistill sem Katrin Baldursdóttir skrifar en pistillinn birtist á Miðjunni.„ Skömmin er svo mikil. Konur eru líka svo hræddar. Þær þora ekki að segja frá,“ segir Katrín en hún telur að hið svokallaða „frelsi“ í nútíma kapítalisma sé helsta ástæðan fyrir þessu. Hún segir „frelsið“ felast í því að allir eigi að meika það, ef ekki sé maður „tapari, lúser sem litið er niður á“ en Katrín kemur með dæmi þessu til stuðnings.

„Þarna er hann Sigurður, það hefur ekkert orðið úr honum, hann getur ekki framfleytt fjölskyldunni almennilega, er alltaf blankur, þó hann vinni myrkranna á milli. Hann Sigurður er aumingi.“

Katrín segir þetta „frelsi“ kapítalismans fela það í sér að geta eignast sem mest af einhverjum veraldlegum hlutum sem fást í verslunum. „Þú ert ekki maður með mönnum ef þú hefur ekki efni á að smíða pallinn við húsið og kaupa fínasta grillið. Hugsið ykkur hvað þetta er ömurlegt,“ segir Katrín. „Svona er hann Sigurður brotinn niður alveg miskunnarlaust. Kannski getur hann veitt viðnám við þessu og lætur þetta ekki hafa áhrif á sig. En það er erfitt að standa á móti þessum stöðuga áróðri í hinum miskunnarlausa kapítalisma nútímans. Að lífið snúist um að þéna peninga, græða og geta keypt sér allt það nýjast og besta. Þessi þrýstingur skapar auðvitað spennu, vanlíðan, áhyggjur og kvíða hjá karlmönnum. Ástandið getur svo bitnað á heimilisfólkinu og á konunni. Auðvitað á þetta líka við um konur, en þrýstingurinn er ekki eins mikill á þær að meika það.“

Hún segir „frelsi“ kapítalismans vera helbera mannvonsku, það kosti veikindi, mannslíf og óhemju af peningum. „Ég er sósíalisti því ég vil ekki svona samfélag,“ segir Katrín. „Frelsi sósíalismans byggir á mannhelgi, mannúð, mannkærlega, samvinnu og virðingu fyrir öllu fólki og náttúru. Auðmenn heimsins reyna að telja fólki trú um, með öllum ráðum, að þetta sé bara kjaftæði, því allir séu í eðli sínu svo gráðugir. Ég blæs á þetta. Í góðu samfélagi skiptum við öll jafnmiklu máli, alveg sama hvað við gerum og hvar við erum stödd í tilverunni.“

Uppfært: Misskilningur var gerður við gerð fréttarinnar en Kolbrún Baldursdóttir skrifaði ekki pistilinn heldur var það hún Katrín Baldursdóttir. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn