Listinn yfir mögulega umsækjendur
Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, er segist ætla að sækja um stöðuna en það segir einnig Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrum þingmaður Vinstri grænna og umhverfisráðherra.
Baldvin Þór Bergsson, dagskrárstjóri númiðla og Rásar 2, segist vera að íhuga að sækja um. Karl Garðarsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar, hefur einnig verið orðaður við stöðuna en hann segist ekki hafa tekið endanlega ákvörðun um hvort hann ætli að sækja um.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um málið. Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu, er í sömu stöðu. Sigmundur Ernir Rúnarsson, blaðamaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki hafa tekið sér afstöðu um málið að svo stöddu. Þó er enn tími til stefnu en umsækjendur geta sótt um fram á mánudag.
Nokkur sem hafa verið orðuð við stöðuna vildu ekki tjá sig um málið við fréttastofu RÚV. Það voru þau Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri Iceland travel og fyrrverandi yfirmaður sjónvarpssviðs Sýnar, Liv Bergþórsdóttir, fyrrum forstjóri NOVA, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, og Þóra Arnórsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrum forsetaframbjóðandi.
Meðal þeirra nafna sem einnig hafa komið upp í umræðunni um næsta útvarpsstjóra eru þau Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá Símanum, Stefán Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Sýnar, og Þórhallur Gunnarsson, fjölmiðlamaður og framkvæmdastjóri miðla Sýnar. Fréttastofa RÚV náði þó ekki tali af þeim við gerð fréttarinnar.