fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ætla að stórauka kolefnisförgun á Hengilssvæðinu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 21. nóvember 2019 08:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orka náttúrunnar hefur ákveðið að margfalda kolefnisförgun fyrirtækisins við jarðvarmavirkjanirnar á Hengilssvæðinu. Þetta tengist þeirri ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur, móðurfélags ON, að vera búin að kolefnisjafna alla starfsemi samstæðunnar fyrir árslok 2030. Það er tíu árum fyrr en áður hafði verið ákveðið, samkvæmt tilkynningu.

33 tonnum af CO2 fargað hvern dag

Kerfisbundin kolefnisförgun við Hellisheiðarvirkjun hófst árið 2014 eftir að CarbFix-aðferðin hafði verið þróuð í samstarfi OR, Háskóla Íslands og erlendra vísindamanna frá árinu 2007. Koltvíoxíði (CO2) sem kemur upp með jarðhitagufunni, er þar blandað saman við vatn og dælt djúpt í berglög þar sem gróðurhúsalofttegundin steinrennur – svokallað „gas í grjót“. Nú eru bundin við virkjunina 33 tonn á hverjum degi. Það svarar gróflega til losunar frá daglegu lífi um 1.000 Íslendinga.

13 milljarða króna sparnaður – öllu brennisteinsvetni fargað

Sama aðferð nýtist jafnframt til að fanga brennisteinsvetni (H2S) úr jarðgufunni. Nú eru um 70% af brennisteinsvetni sem upp kemur við jarðhitanýtinguna bundið sem steindir í jarðlögum við virkjunina. Aukin binding þýðir að öllu brennisteinsvetni sem upp kemur verður fargað, samhliða koltvíoxíðinu.

Áætlað er að þessi aðferð til að glíma við brennisteininn hafi sparað OR og ON sem nemur um 13 milljörðum króna og er þá borið saman við hefðbundnar lausnir í þeim efnum. Þar skipta máli talsverðir styrkir sem fengist hafa úr rannsóknaráætlunum Evrópusambandsins til þróunar aðferðarinnar. Frá árinu 2014 hefur hreinsun koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis verið rekin sem hluti vinnsluferla heits vatns og rafmagns við Hellisheiðarvirkjun og undirbúningur að uppsetningu við Nesjavallavirkjun er hafinn.

Sporlaus vinnsla

„Við tökum Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna alvarlega,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar. „Þar standa loftslagsmarkmiðin okkur nærri og opinber stefna okkar hjá ON um sporlausa vinnslu jarðhitans á Hengilssvæðinu smellpassar við þau. Ef við ætlum að bregðast við loftlagsvánni af þeirri alvöru sem hún krefst, verðum við öll að leggja okkur fram – fólk, fyrirtæki og stjórnvöld – og þar ætlar Orka náttúrunnar að vera í forystu,“ bætir Berglind við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki