fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Brynjar vill aðskilnað – „Virðist einkum vera í því að eyðileggja einstaklinga og fyrirtæki“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 11. nóvember 2019 10:34

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það nauðsynlegt að aðskilja ríki og RÚV og það sé jafnvel brýnna en að aðskilja ríki og kirkju að fullu. Telur hann þjóðkirkjuna gera meira gagn en RÚV og sé ódýrari í rekstri einnig. Þá vegur hann þungt að fréttamönnum RÚV og sakar þá um að eyðileggja einstaklinga og fyrirtæki með rannsóknarblaðamennsku sinni.

Hann, líkt og æ fleiri Sjálfstæðismenn í mörgum málum, er í meginatriðum sammála Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, sem varpaði þessari hugmynd fram í Silfrinu í gær í framhjáhlaupi:

„Stundum hittir Sigmundur Davíð naglann á höfuðið. Í umræðu í Silfrinu áðan um aðskilnað ríkis og kirkju benti hann á hvort rétt væri í leiðinni að aðskilja ríkið og RUV, eða gaf það í skyn réttara sagt. Það sem er líkt með RUV og þjóðkirkjunni er að þessar stofnanir hafa lögbundnar skyldur umfram aðra á sama markaði auk menningarlegs mikilvægis. Þannig hafa greiðslur úr ríkissjóði verið réttlættar til handa þeim. Munurinn er hins vegar sá að aðskilnaður ríkis og kirkju hefur fyrir löngu farið fram en stuðningur skattgreiðenda við RUV hækkar jafnt og þétt. Ríkið greiðir samkvæmt kirkjujarðasamkomulagi fasta upphæð sem endurgjald fyrir jarðirnar,sem ríkið hefur að vísu ekki staðið við eftir hrun. Með réttu er hægt að segja að það sé vel í látið og sé í raun stuðningur að einhverju leyti við þjóðkirkjuna, eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir að við gerum. En það er miklu lægri upphæð en stuðningur skattgreiðenda við RUV á hverju ári. Má segja að einu tengsl ríkis og kirkju í dag eru að forseti Íslands kemur enn að setningu biskups og vígslubiskupa í embætti, sem er auðvitað bara formgerningur,“

segir Brynjar.

Hann telur einnig að þjóðkirkjan geri meira gagn en RÚV:

„Svo má ekki gleyma því í þessum samanburði að þjóðkirkjan gerir talsvert gagn fyrir land og þjóð en RUV virðist einkum vera í því að eyðileggja einstaklinga og fyrirtæki í fullkomlega misheppnaðri rannsóknarblaðamennsku, þar sem fréttamenn eru að glíma við verkefni sem þeir ráða ekki við. Þótt ég verði seint kallaður trúmaður og verið óánægður með margt hjá kirkjunni mun ég fyrr ganga í hollvinasamtök þjóðkirkjunnar en hollvinasamtök RUV.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus