Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, vill að Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, geri grein fyrir stefnu Íslands gagnvart utanríkisstefnu Bandaríkjanna og ákvörðun Bandaríkjaforseta, Donald Trump, um að draga herlið sitt til baka frá Sýrlandi. Í kjölfarið hótaði hann því að rústa efnahag Tyrklands ef Tyrkland ákveður að nýta sér fjarveru herliðs Bandaríkjanna gegn Kúrdum.
Hefur ákvörðun Trump verið harðlega gagnrýnd, af yfirmönnum varnar- og utanríkismálaráðuneytisins, hersins, sem og hátt settum repúblikönum.
Logi segir ákvörðun Trump setja Kúrda í hættu:
„Leikur að eldi
Utanríkisstefna Bandaríkjanna veldur mér miklum áhyggjum. Það voru sár vonbrigði að þau segðu sig frá Parísarsáttmálanum, óráð að þau drægju sig út úr samkomulagi við Írani um kjarnorkuvopn og hryllilegt ef Trump stefnir nú Kúrdum í voða með því að draga bandaríska hermenn frá Sýrlandi. Sumir segja að þetta gefi tyrkneska hernum grænt ljós á sókn gegn Kúrdum, með tilheyrandi hörmungum.
Ég hef því óskað eftir því að utanríkisráðherra komi á fund utanríkismálanefndar sem fyrst og geri grein fyrir afstöðu sinni varðandi þá grafalvarlegu stöðu sem komin er upp á alþjóðavettvangi eftir nýjustu ákvörðun Bandaríkjaforseta.
Í beiðninni lagði ég áherslu á að rætt verði hvort tilefni sé til viðbragða eða yfirlýsinga af hálfu Íslands“