Flokkur fólksins lagði fram tillögu í velferðarráði í vikunni um úrbætur í mötuneytismálum eldri borgara. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi, greinir frá þessu á Facebook.
Tillögurnar miða að því að gefa eldri borgurum meira svigrúm í mötuneytismálum. Til dæmis að þeir hafi kost á að fá mat sendan heim vegna veikinda, eða vegna þess að þeir fái ekki sæti í matsal.
Eins þurfi borgin að heimila eldri borgurum að taka matarafganga með sér heim. „Að öðrum kosti er matnum hent. Þetta þykir eldri borgurum sárt enda vanir að nýta allan mat auk þess sem meirihlutinn í borginn er að boða minnkun á matarsóun.“
Eins leggur flokkurinn til að tekið verði á eignahefðun sæta í mötuneytum, en nokkuð hafi borið á því að tilteknir einstaklingar telji sig eiga tiltekin sæti. „Þetta hefur fælingarmátt og þarf því að ræða og benda á mikilvægi umburðarlyndis og sveigjanleika“‘
Hér má lesa tillögurnar í heild sinni:
„Flokkur Folksins hefur látið sig mötuneytismál eldri borgara mikið varða. Þessi tillaga var lögð fram í velferðarráði í vikunni:
Tillaga Flokks fólksins að eftirfarandi þættir er varða eldri borgara og mötuneyti verði endurskoðaðir og betrumbættir hið fyrsta.
1. Að þeir sem þurfa að fá mat sendan heim vegna veikinda, ef þeir búa í húsnæði sem er tengt við mötuneyti, t.d. Borgir mötuneyti og íbúar í Eirborgum fái mat alla daga vikunnar á meðan veikindin standa yfir.
2. Að leyfilegt verði að taka með sér mat heim ef einhver vill. Stundum eru líka engin laus sæti í matsal. Þá hefur fólk þurft að bíða eftir að sæti losnar.
3. Benda þarf fólki á að engin á einhver föst sæti. Dæmi eru um að fólk hafi verið rekið úr sæti vegna þess að einhver telur sig eiga það eða að viðkomandi er beðin að færa sig. Þetta hefur fælingarmátt og þarf því að ræða og benda á mikilvægi umburðarlyndis og sveigjanleika. Að sjálfsögðu á þó alltaf að taka tillit til hreyfihamlaðra við sætaskipun.
4. Leyfa þarf fólki að taka afgang matar með sér heim, ef viðkomandi hefur ekki lyst á að klára matinn sem er skammtaður. Að öðrum kosti er matnum hent. Þetta þykir eldri borgurum sárt enda vanir að nýta allan mat auk þess sem meirihlutinn í borginni er að boða minnkun á matarsóun.
Óskað eftir umsögn frá velferðarsviði.“