fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Hyggst efla starfsemina á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 11. október 2019 13:10

Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nefnd Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, hefur skilað skýrslu um arfleifð Jóns Sigurðssonar. Þar er sett fram framtíðarsýn um „lifandi, nærtæka og tímalausa arfleifð,“ samkvæmt tilkynningu.

Þá er lagt til að starfsemin á Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns, verði efld og stofnaður formlegur samstarfsvettvangur þeirra aðila sem nú sinna opinberri menningarstarfsemi sem tileinkuð er ævistarfi og minningu Jóns Sigurðssonar.

Einnig er lagt til að starfsemin á Hrafnseyri þróist yfir í nútímalegt fræðasetur með alþjóðleg tengsl, sem sinni fjölþættu hlutverki fyrir menntir og menningu þjóðarinnar auk þess sem það verði lyftistöng í byggðalegu tilliti.

Forsætisráðherra hyggst leggja fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi síðar í vetur sem byggð verður á skýrslu nefndarinnar.

Frá Hrafnseyri við Arnarfjörð

Nefndin var þannig skipuð:

Guðmundur Hálfdánarson, prófessor, tilnefndur af Háskóla Íslands
Helga Þórsdóttir, starfandi safnstjóri, tilnefnd af Byggðasafni Vestfjarða
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, tilnefnd af Þjóðminjasafni Íslands
Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, deildarstjóri, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Skúli Gautason, menningarfulltrúi, tilnefndur af Vestfjarðastofu f.h. Fjórðungssambands Vestfjarða
Þorsteinn Magnússon, varaskrifstofustjóri, tilnefndur af skrifstofu Alþingis og
Kolbrún Halldórsdóttir, verkefnisstjóri, formaður, skipuð án tilnefningar.

Með nefndinni starfaði Bjarni Snæbjörn Jónsson ráðgjafi.

Arfleið Jóns Sigurðssonar – Skýrsla nefndar um inntak, stjórnsýslu og miðlun

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2