Prasoon Dewan, formaður Íslensk-indverska viðskiptaráðsins, segir að verið sé að skoða hvort svokallaðar Bollywood kvikmyndir, auk sjónvarpsefnis, henti til upptöku hérlendis. Þá sé sérstaklega horft til hins óvenjulega landslags hérlendis og aðstöðu. Reyndar sé Bollywood þegar komið hingað, þar sem vinsæl indversk tónlist hafi verið tekin upp á Íslandi. Dewan telur að talsverður áhugi sé hjá indverskum kvikmyndaframleiðendum á að kvikmynda hér.
Bollywood er eins konar indversk útgáfa af Hollywood og er í Mumbai. Það eru hvergi framleiddar eins margar kvikmyndir og einmitt á Indlandi, eða vel yfir 2000 talsins á ári. Nánast helmingur af öllum tekjum af kvikmyndum í landinu kemur frá Bollywood myndum, sem gjarnan bjóða upp á tónlist, rómantík, spennu, gamansemi og drama, þar sem öllu er blandað saman.