fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Lilja styður LÍS um 9 milljónir á ári

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 24. júlí 2019 18:30

Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra við undirritun samningsins. Mynd-Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) eru samtök háskólanema á Íslandi og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. Mennta- og menningarmálaráðuneytið styrkir starfsemi félagsins og á dögunum undirrituðu Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Sonja Björg Jóhannsdóttir, forseti framkvæmdastjórnar LÍS, samning þess efnis.

Samningurinn er til ársloka 2023 og fær LÍS 9 milljónir árlega frá ráðuneytinu, eða 36 milljónir alls.

„Með samningnum vill mennta- og menningarmálaráðuneyti stuðla að öflugum samstarfsvettvangi háskólastúdenta og að LÍS sé öflugur tengiliður stjórnvalda við íslenska háskólastúdenta í umræðu um skipulag og stefnumótun háskólastigsins,“

segir í tilkynningu.

LÍS eru regnhlífarsamtök og standa að þeim átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis. Hlutverk samtakanna er að standa vörð um hagsmuni stúdenta og skapa samstarfsvettvang fyrir íslensk stúdentafélög.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Málefnahnútarnir enn óleystir

Þorsteinn Pálsson skrifar: Málefnahnútarnir enn óleystir