fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Starfsgreinasambandið styður Eflingu gegn starfsmannaleigum og notendafyrirtækjum þeirra

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. júlí 2019 14:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starsfgreinasambandið sendi frá sér ályktun rétt í þessu þar sem lýst er fyrir fullum stuðningi við baráttu Eflingar og annarra stéttarfélaga við að tryggja réttindi launafólks.

 Ályktun sambandsins er eftirfarandi: 

Starfsgreinasambandið ítrekar ábyrgð fyrirtækja sem nýta sér starfsmannaleigur

Starfsgreinasamband Íslands lýsir yfir stuðningi við baráttu Eflingar og annarra stéttarfélaga við að tryggja réttindi launafólks. Starfsmannaleigur hafa verið að ryðja sér til rúms á íslenskum vinnumarkaði í auknum mæli á undanförnum misserum og hafa komið upp alltof mörg alvarleg tilvik um brot á réttindum og kjörum starfsfólks á þeirra vegum.

Þau fyrirtæki sem nota starfsmannaleigur verða að gera sér grein fyrir að þau bera fulla ábyrgð, skv. lögum um keðjuábyrgð, á því að starfmenn sem þau ráða í gegnum slíkar leigur njóti sambærilegra lög- og kjarasamningsbundinna lágmarkskjara og aðrir starfsmenn.

Það er algjörlega ólíðandi að það sé ítrekað brotið á erlendu starfsfólki sem kemur hingað til lands á vegum starfsmannaleiga og mun Starfsgreinasambandið nota öll tæki og aðferðir sem það hefur yfir að ráða til að stöðva slíkt háttalag og standa þétt við bakið á félagsmönnum og stéttarfélögum í þeirri baráttu.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt