fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Forseti Íslands gerist starfsmaður á plani og fyllir á þrjá við nýja fjölorkustöð

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 15. maí 2019 09:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag breytist bensínstöð Orkunnar norðan við Miklubraut í fyrstu fjölorku-stöð landsins þar sem ökumenn og aðrir notendur munu, auk hefðbundins jarðefnaeldsneytis, geta keypt nær alla endurnýjanlega orkugjafa sem framleiddir eru til samgangna í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Metangasið kemur frá urðunarstað SORPU í Álfsnesi, hraðhleðsla fyrir rafmagns- og tengitvinnbíla frá Orku náttúrunnar og þá verður hægt að fá vetni frá Orku náttúrunnar sem framleitt er með rafgreiningu í Hellisheiðarvirkjun.

Fjölorkustöðin við Miklubraut er samstarfsverkefni sem hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið og er styrkt af Evrópusambandinu um tvær milljónir evra. Verkefnisstjórn og þróun hefur verið í höndum Íslenskrar NýOrku en stöðin verður rekin og er í eigu Orkunnar.

Forsetinn fyllir þrjá

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mun flytja ávarp og taka stöðina formlega í notkun með því að fylla á þrjá vistvæna bíla með innlendum endurnýjanlegum orkugjöfum. Opnunarathöfnin hefst á Orkustöðinni við Miklubraut  kl. 12:30 í dag.

Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku, segir þetta vera risaskref:

Það er einstakt að fá að taka þátt í opnun stöðvar sem býður alla vistvæna kosti á Íslandi. Orkan er að taka risaskref í samfélagslegri ábyrgð og ég er sannfærður um að þessa dags verður minnst í orkusögu þjóðarinnar. Nú er mikilvægt að fyrirtæki og opinberir aðilar fylgi fordæmi Orkunnar og setji sér markmið að kaupa aðeins bíla sem nota vistvænt eldsneyti þannig að eftirspurn aukist og hægt verði að byggja upp enn frekari innviði.“

Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs eiganda Orkunnar, segir fyrirtækið ahfa mótað skýra stefnu:

Það eru tímar breytinga í samgöngum sem í felast bæði tækifæri og áskoranir. Við höfum mótað okkur skýra stefnu og ætlum að vera leiðandi í þeim breytingum, vinna þær í sátt við samfélagið og með opnun fjölorkustöðvarinnar á Miklubraut sýnum við það í verki. Orkan sem orkufélag framtíðarinnar fagnar því þessum áfanga í sögu félagsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus