Meirihlutinn í borginni segir niðurstöðuna í máli Ástráðs Haraldssonar vera viðunandi. Borgin þarf að greiða Ástráði 3 milljónir króna vegna brota á jafnréttislögum. Ástráður sótti um stöðu borgarlögmanns og var metinn hæfari en Ebba Schram, sem var ráðin í starfið.
Ástráður kærði ráðninguna og var það mat kærunefndar jafnréttismála að borgin hefði brotið jafnréttislög, var talið að Reykjavíkurborg hafi ekki getað sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hefðu legið til grundvallar ráðningunni.
Í úrskurði kærunefndarinnar, sem lá fyrir í júlí í fyrra, segir að Ástráður hafi fengið þær upplýsingar í samtölum við fyrrverandi borgarlögmann og borgarstjóra að gert væri ráð fyrir að hún myndi sækja um stöðuna og að hún hefði fengið hvatningu frá þeim báðum. Þrátt fyrir það taldi Ástráður fullvíst að ekkert væri fyrirfram ákveðið í þeim efnum og sótti því sjálfur um.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna segja í bókun sinni á fundinum í gær að jákvætt sé að ljúka samkomulagi vegna úrskurðar kærunefndar með sátt: „Niðurstaðan er viðunandi fyrir Reykjavíkurborg en þar kemur fram að hún feli ekki í sér viðurkenningu á sérstakri skaða- eða miskabótaskyldu Reykjavíkur vegna þeirra atvika sem um ræðir.“
Sjálfstæðismenn bókuðu að Reykjavíkurborg væri með þessu að staðfesta að ráðning Ebbu í embætti borgarlögmanns hafi verið ólögleg, borgin væri nú að fría sig frá frekari dómsmálum með því að samþykkja eingreiðslu upp á þrjár milljónir króna.
Fulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins sögðu samkomulagið vera „enn eitt málið sem útsvarsgreiðendur þurfa að standa skil á í arfaslakri stjórnsýslu og ráðningarmálum í Ráðhúsi Reykjavíkur“.