fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Eyjan

Gullströndin minnir á sig

Egill Helgason
Mánudaginn 2. apríl 2018 12:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vestur í bæ voru eitt sinn öskuhaugar Reykjavíkur. Borgarbúar sem eru komnir á efri ár muna eftir þessu. Rusli var hent þarna við borgarmörkin, þar sem nú er Eiðisgrandi. Þar var urmull af rottum, en svo mátt líka finna ýmislegt fémætt á öskuhaugunum. Það gerði Pétur Hoffmann Salómonsson, kynlegur karl sem setti svip á borgina.

 

 

Pétur gramsaði eftir dýrgripum á öskuhaugunum, seldi þá svo í Austurstræti, við vegginn á Útvegsbankahúsinu. Pétur kallaði öskuhaugana Gullströndina, eins og lesa má í þessari frétt frá 1957.

 

 

Nú er þetta allt breytt. Þarna hafa verið gerðar gríðarlegar uppfyllingar. Akbrautin sem liggur út á Seltjarnarnes er að miklu leyti á uppfyllingum. Svo hafa verið hlaðnir grjótgarðar meðfram fjörunni, yfir þá er hægt að klöngrast og niður að sjávarmáli. Það verður líka að segjast eins og er að ströndin er allmiklu hreinni en hún var í eina tíð þegar rotturnar réðu ríkjum. Ég man eftir að hafa verið í leiðangri með strákum sem ætluðu að fara vestur á Granda að skjóta rottur með teygjubyssum. En veiðin var heldur léleg í þeirri ferð.

En sóldaginn sumarlangan
fer saltlykt og tjöruangan
um ströndina víða vega.
Úr grjótinu gægist rotta.
Og gömlu bátarnir dotta
í naustunum letilega.

Orti Tómas í kvæðinu sínu um vorkvöldið í Vesturbænum.

En Gullströndin minnir aðeins á sig. Í Mogga má lesa frétt um að Reykjavíkurborg þurfi að veita Búseta afslátt vegna lóðar vestur á Keilugranda sökum þess að jarðvegur hafi reynst vera mengaður. Þarna stóð áður skemma kennd við SÍF. Hún hefur verið rifin og þarna á að rísa íbúðabyggð. En mengunin stafar af því að eitt sinn voru þarna öskuhaugar bæjarins, sem nú eru komnir lengra inn í landið vegna uppfyllinganna. Jarðvegurinn er gljúpur og langt niður á fast berg og það þarf að reisa húsin á súlum, eins og sjá má á þessari mynd sem var tekin í göngutúr á laugardaginn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hildur á völina og kvölina – ætlar hún að leiða flokkinn sem kjósendur höfnuðu til valda?

Orðið á götunni: Hildur á völina og kvölina – ætlar hún að leiða flokkinn sem kjósendur höfnuðu til valda?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kristrún Frostadóttir: Segðu já ef þú ert óviss – færð alltaf tækifæri seinna til að segja nei

Kristrún Frostadóttir: Segðu já ef þú ert óviss – færð alltaf tækifæri seinna til að segja nei
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Kjarni málsins

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Kjarni málsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Útskýrir aðdráttarafl Sjálfstæðisflokksins – „Þetta snýst ekki aðeins um stjórnmál“

Útskýrir aðdráttarafl Sjálfstæðisflokksins – „Þetta snýst ekki aðeins um stjórnmál“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni

Kristrún Frostadóttir: Valið stendur milli harðs hægri meirihluta eða skynsemi út frá miðjunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?

Orðið á götunni: Veit Einar Þorsteinsson hvenær hann segir satt og hvenær hann er að ljúga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún Frostadóttir: Væri algjör afleikur að setjast aftur að teikniborðinu

Kristrún Frostadóttir: Væri algjör afleikur að setjast aftur að teikniborðinu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sporin hræða – salan á Landsvirkjun kostaði borgarbúa hundruð milljarða

Orðið á götunni: Sporin hræða – salan á Landsvirkjun kostaði borgarbúa hundruð milljarða