fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Ísland tekur þátt í alþjóðasamþykkt um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 7. desember 2018 16:00

Ljósmynd: Rauði krossinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að Ísland tæki þátt í afgreiðslu nýrrar samþykktar Sameinuðu þjóðanna um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga. Gerðir verða ákveðnir fyrirvarar við samþykktina þar sem túlkun Íslands verður áréttuð, í samræmi við það sem helstu grannríki gera.

Samþykktin um örugga, skipulagða og reglubundna fólksflutninga (e. Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration) er ný alþjóðasamþykkt Sameinuðu þjóðanna vegna vaxandi fólksflutninga í heiminum og fjallar hún um málefni svonefndra farenda (e. migrants). Hún verður samþykkt á sérstakri ríkjaráðstefnu í Marrakesh í Marokkó í byrjun næstu viku og svo staðfest af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í framhaldi af því.

Markmiðið með samþykktinni er að bæta viðbrögð alþjóðasamfélagsins við vaxandi fólksflutningum. Samþykktin er ekki lagalega bindandi, en skapar samvinnugrundvöll ríkja heimsins um skipulögð og samhæfð viðbrögð. Hún taki mið af fullveldi ríkja og undirstrikar rétt hvers ríkis til að ráða sjálft innflytjendalöggjöf og stefnu í málefnum innflytjenda.

Samþykktin byggir á núgildandi mannréttindasamningum en um er að ræða samstöðuyfirlýsingu aðildarríkja og hvatningu til þeirra um mannsæmandi meðferð á farendum og málefnum þeirra, sem víða um heim hefur verið í miklum lamasessi. Samþykktin kveður á um 23 markmið sem ríkin sammælast um að vinna að. Þau ná til ólíkra þátta á borð við samræmda tölfræði, upplýsingagjöf til innflytjenda, útgáfu skilríkja, endurviðtöku eigin borgara, mannsæmandi aðstæður til vinnu, aðgerðir gegn mansali og réttindi til grunnþjónustu svo fátt eitt sé nefnt.

Efni samþykktarinnar er innan þess lagaramma og framkvæmdar sem nú þegar er í gildi á Íslandi og kallar lokaútgáfa hennar ekki á lagabreytingar. Þá er þátttaka í þessari samþykkt í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um stuðning við mannréttindi og núgildandi framkvæmdaáætlun um málefni innflytjenda.

Ísland mun því styðja málið en fara um leið að dæmi Danmerkur, Noregs, Bretlands og fleiri ríkja og árétta túlkun Íslands á samþykktinni sérstaklega. Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins sækir fundinn í Marrakesh fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og tekur þátt í að samþykkja samþykktina, um leið og hann áréttar skilning Íslands á henni.

Talið er að í heiminum séu 258 milljónir farenda og hafa þeir aldrei verið fleiri. Árið 2016 samþykkti sérstakur leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna svokallaða New York-yfirlýsingu um málefni flóttafólks og farenda. Samþykktin er unnin á grundvelli þessarar yfirlýsingar. Formlegar samningaviðræður hófust í febrúar 2018 og tók Ísland þátt í þeim. Málið var kynnt í ríkisstjórn í maí síðastliðnum og utanríkismálanefnd í júnílok.

Texta samþykktarinnar er að finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega