fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Varaþingmaður Pírata fagnar dauða John McCain: „Mín tilnefning til friðarverðlauna Nóbels í ár er æxlið sem dró hann til dauða.“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 28. ágúst 2018 09:18

Samsett mynd DV piratar.is/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snæbjörn Brynjarsson, rithöfundur og varaþingmaður Pírata, skrifar pistil um John McCain, bandaríska öldungadeildarþingmanninn sem lést um helgina, á Stundina í gær. Ber pistillinn nafnið „Minning um vondan mann“ og óhætt er að segja að Snæbjörn syrgi ekki fráfall þessa fyrrum forsetaframbjóðanda, sem hann kallar siðferðislega rotþró og vonast til að brenni í helvíti.

Þá lofar hann heilaæxlið sem dró McCain til dauða:

„Sem betur fer, fyrir fyrrum öldungadeildarþingmanninn bandaríska John McCain er helvíti ekki raunverulega til. Ef svo væri þá væri hann þar í djúpsteikingarpotti innan um aðrar McCain franskar. Um hann hef ég fátt annað að segja en að mín tilnefning til friðarverðlauna Nóbels í ár er æxlið sem dró hann til dauða,“

Segir Snæbjörn. Hann segir McCain hafa þegið meira fé frá Bandarísku skotvopnasamtökunum (NRA) heldur en nokkur annars stjórnmálamaður þar vestra og upphafsmann teboðshreyfingarinnar:

„Kannski ætti ég að tala  um þegar John McCain söng glaðhlakkalega á framboðsfundi til forseta „bomb, bomb, bomb Iran,“ eins og það væri eitthvað grín að bomba 79 milljón manna þjóð? Mann sem hafði svo slaka dómgreind að hann valdi Söru Palin sem með-frambjóðanda og varaforsetaefni? McCain er svo sannarlega ekkert ljós skynseminnar í hafi popúlisma, ef eitthvað er þá markar forsetaframboð hans árið 2008 upphafið að teboðsvæðingu repúblikanaflokksins. Það var augnablikið sem flokkseigendafélagið gaf grænt ljós á vitleysingana með samsæriskenningarnar, raunveruleikasjónvarpsstjörnurnar og rasismann.“

Trump skárri en McCain

Millifyrirsagnir eru Eyjunnar

Snæbjörn segir að McCain hafi verið litlu skárri en Donald Trump:

„En aðeins um þennan arftaka. Nú ber á því að hópur fólks sem er alls ekki sammála John McCain í neinu, hyllir honum og hampar vegna þess að hann hefur gagnrýnt Donald Trump, og vegna þess að Donald Trump hefur gert lítið úr honum. Það er einstaklega furðuleg afstaða. Það er svo sannarlega ekki Hitler til bóta að hann hataðist út í Stalín, né Stalín til bóta að hann á endanum átti þátt í að sigra Hitler. McCain studdi George W. Bush og stríðsævintýri hans með ráðum og dáð, og ef eitthvað er þá er Donald Trump mun skárri en afglapinn með kúrekahattinn.“

Þá segir Snæbjörn að John McCain hafi stofnað njósnastofnunina NSA og pyntingarbúðirnar í Guantanamo á Kúbu:

„Við ættum ekki að gleyma hver stofnaði NSA, stofnunina sem njósnar um heimsbyggðina, né heldur ættum við að gleyma hver stofnaði pyntingarbúðirnar í Guantanamo og við ættum heldur ekki að gleyma að sá maður kom okkur út í stríð sem vara enn þann dag í dag. Eitra pólitíkina og eyðileggja líf. Ýta þúsundum á flótta í hverjum mánuði og hafa ýtt milljónum af stað og drepið aðrar milljónir ofan á það. Ég gleymi ekki hver studdi það. Ekki frekar en að ég gleymi því hvernig sá sami maður, John McCain hóf pólitískan frama sinn.“

Snæbjörn nefnir að McCain hafi verið kominn af mikilli hermannafjölskyldu, afi hans og faðir voru báðir fjögurra stjörnu hershöfðingjar:

„…það var tengslum McCain að þakka að hann varð orrustuflugmaður ekki neinu öðru. Í herakademíunni var hann helst þekktur fyrir veisluhöld, ekki dugnað eða yfirburðagreind. Enda brotlenti hann oftar en einu sinni þar til hann loks var fangaður í 23 flugi hans yfir Norður-Víetnam. Þá var hann í þeim göfugu erindagjörðum að varpa napalm-sprengjum á hitaveitu Hanoi.

Sem fangi öðlaðist McCain frægð og þrátt fyrir fyrirlitningu mína á manninum get ég vel játað að það var ansi djarft að sitja lengur í haldi Víetnamanna frekar en að samþykkja að vera framseldur, af því aðrir hermenn voru enn í haldi. Sá partur af ævi hans má næstum því segja eitthvað gott um, því þrátt fyrir allt litaði það afstöðu hans til pyntinga, sem hann var andvígur. Gott hjá honum,“

segir Snæbjörn, en þetta er það jákvæðasta sem hann hefur að segja um McCain.

Alltaf á móti friði

Snæbjörn segir McCain alltaf hafa verið á móti friði og staðið gegn öllum framförum:

„En þetta kenndi honum þó ekki neina lexíu um hernaðarmaskínu Bandaríkjanna eða eðli stríða. McCain var alltaf á móti öllum friði. Hann taldi Bandaríkjastjórn ekki hafa gengið nógu langt í Víetnam, ekki bombað nógu mikið, hann hataði „the gooks.“

Á meðal álitsgjafa og fjölmiðla í Bandaríkjunum og víðar er nánast pervertísk þrá eftir að finna íhaldsmann sem ekki siðferðisleg rotþró og McCain hefur því stundum fengið hetjuljóma. Var ekki fínt hjá honum að kjósa ekki með afnámi Obamacare? (Sem var upprunalega uppfinning íhaldsamrar hugsanaveitu). Var ekki gott hjá honum að leggja til einhver mörk á hversu mikið fé stórfyrirtæki mættu dæla í kosningasjóði.

Almennt hefur McCain staðið gegn öllum framförum. Hann er á móti því að konur geti ráðið hvort þær verði óléttar eða ekki. Hann var alla tíð á móti hjónaböndum samkynhneigðra. Hann var á móti því að frídagur væri tileinkaður Martin Luther King. Hann var hlynntur minni byssulöggjöf, minna eftirliti með fjármálastofnunum og alltaf hlynntur meira stríði. Hann kaus með öllum hernaðarívilnunum, öllum vopnakaupum og krafðist meira af báðu. Á samvisku hans eru milljón mannslífa og sem betur fer komst hann ekki í þá stöðu að geta margfaldað þá tölu.“

Megi hann brenna í helvíti

„En mannslífin sem myndu glatast í vonlausum hernaðardraumórum manna eins og McCain kæmu aldrei aftur. Þess vegna tæki ég frekar þrjú kjörtímabil af Trump en eitt kjörtímabil af McCain, og megi hann brenna í því helvíti sem hann þóttist trúa á, sem við hin vitum reyndar vel að ekki er til.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2