Helga Björg Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra, sem að mati Héraðsdóms Reykjavíkur sýndi undirmanni sínum eineltistilburði, með þeim afleiðingum að Reykjavíkurborg var dæmd til sektar upp á 1,5 milljónir, kallaði sjálf eftir því að borgarritari, Stefán Eiríksson, virkjaði sérstakt eineltisteymi Skóla- og frístundarsviðs, til að rannsaka eineltismálið betur, eftir að áfrýjunarfrestur málsins var liðinn.
Þetta segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins á Facebook í dag.
Hún segir stjórnsýslu Reykjavíkur í molum, sem rannsaki sjálfa sig og að þolandinn þurfi að mæta á fundi, þvert gegn vilja sínum, vegna hinnar nýju rannsóknar:
„Stjórnsýsla Reykjavíkur er í molum. Stjórnsýsla Reykjavíkur rannsakar sjálfa sig og tekur ekki mark á dómstólum!!! Nýverið felldi Héraðsdómur Reykjavíkur dóm í eineltismáli innan ráðhússins. Sá sem lagður var í einelti vann fullan sigur, borgin ákvað að fara ekki með málið fyrir Landsrétt og þolanda dæmdar bætur. Undir venjulegum kringumstæðum væru þetta málalok. Svo er ekki í ráðhúsinu. Því nú hefur borgarritari virkjað eineltisteymi Skóla- og frístundasviðs til að „rannsaka málið“. Samkvæmt mínum upplýsingum var það gert að beiðni undirmanns hans – einmitt þess sem lagði þolandann í einelti sem starfar sem skrifstofustjóri borgarstjóra. Þolandanum/fjármálastjóranum er nú gert, þvert gegn vilja sínum, að mæta á fundi vegna þessa. Skrifstofa borgarstjóra heldur s.s. áfram með málið þó búið sé að dæma í því með afdráttarlausum orðum dómara um framkomu skrifstofustjóra í garð undirmanns.“
Í dómnum segir að framkoma Helgu Bjargar sé „lítilsvirðing“ við starfsmann sinn og sá dómarinn ástæðu til að minna Helgu á að undirmenn hennar væru ekki „dýr“ í hringleikahúsi yfirmanna.“
Morgunblaðið kvaðst hafa heimildir fyrir því að bæði borgarritari og borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, hafi vitað um málið og lögfræðingar stefnenda/þolenda hafi hvatt þá til að ná sátt í málinu utan dómstóla. Hinsvegar hafi verið ákveðið að fara dómstólaleiðina, þrátt fyrir að augljóst þætti að staða Helgu Bjargar væri afar veik í málinu.
Í dómnum kemur einnig fram að á tímabilinu frá október 2016 og fram á sumar 2017 fór fram sáttameðferð milli þeirra Helgu og þolandans. Þau hittu sálfræðing á sáttafundum, bæði hvort í sínu lagi og saman. Í desember 2016 var gert hlé á viðtalstímum og ákveðið að hittast á ný á vordögum til eftirfylgni.