Loforðabréfi Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, í aðdraganda Alþingiskosninga 2013 hefur nú skotið upp kollinum á samfélagsmiðlum. Í bréfinu, sem sent var á eldri borgara fyrir kosningarnar 2013, eru talin upp mál sem Sjálfstæðisflokkurinn segist ætla að setja í öndvegi, fái hann kosninga til.
Fjölmargir hafa birt og deilt bréfinu, þar á meðal Björn Birgisson í Grindavík sem veltir fyrir sér hvað orðið hafi um efndirnar á loforðunum, en þær eru sagðar litlar, ef einhverjar.
Sigurður Jónsson, varaformaður Landssambands eldri borgara, segir efndirnar hafa verið litlar hjá Bjarna.
Sigurður segir það ekki hafa gerst nema að litlu leiti:
„Það sem við erum óhress með er að enn er verið að skerða kjör hjóna, það er ekki litið á þau sem einstaklinga. Hjón fá til dæmis 60.000 krónum minna á mánuði heldur en að einstaklingur sem býr einn. Svo þegar er borgað út hjá Tryggingastofnun er ekki stuðst við launavísitölu heldur verðlagsþróun og þannig er alltaf notuð óhagstæðari mælieining til þess að reikna út okkar hækkun.“
„Hann hefur ekki verið lækkaður, er enn í 20 prósentum“
segir Sigurður.
„Við viljum meina að það eigi að afnema allar tekjutengingar og við borgum bara skatt af okkar tekjum eins og annað fólk. Það er fáránlegt að fólk borgi milli 70-80% skatt af tekjum sem er umfram 100.000 krónur, því skerðingarnar eru svo miklar. Efndirnar eru bara allt of litlar. Það er líka svo erfitt fyrir okkar hóp að horfa upp á allar þessar leiðréttingar, og afturvirku hækkanir annarra stétta, meðan stór hluti af okkar hóp er með tekjur undir framfærsluviðmiðunum. Það fást 335 þúsund krónur á mánuði fyrir einstakling, en útborgað er upphæðin 250.000 krónur. Alls eru um 40.000 eldri borgarar á Íslandi og þriðjungur þeirra er undir þessum mörkum.“
Þess má geta að Bjarni Benediktsson var fjármálaráðherra frá 2013-17 og forsætisráðherra megnið af árinu 2017. Hann er nú fjármálaráðherra.