Hamptons er vinsæll sumardvalarstaður New York-búa og eftir að Covid-19 brast á hefur aðsóknin aldrei verið meiri. Það er þó ekki á allra færi að geta dvalist á þessum gamalgróna og rándýra stað en mánaðarleiga á lekkeru húsnæði yfir háannatímann getur verið allt að 500.000 dölum eða sem samsvarar tæplega 68 milljónum króna. Sumir eru reyndar svo séðir að hafa fjárfest í húsi á svæðinu og geta brugðið sér þangað í afslöppun hvenær sem er.
Jennifer Lopez hefur haldið mikið til í húsi sínu, Water Mill Mansion, frá því að Covid reið yfir. Húsið keypti hún á tæplega 10 milljónir dala árið 2013 og það gera, dömur mínar og herrar, 1367 milljónir íslenskra króna. Slotið er 743 fermetrar, er með átta svefnherbergi og sjö og hálft baðherbergi svo það ætti að fara vel um þau Jennifer, unnustann Alex og börnin þeirra fjögur.
Öllu temmilegra er hús fatahönnuðarins Stellu McCartney sem er í Amagansett í Hamptons. Það er 125 fermetrar og Stella keypti það árið 2016 á „aðeins“ eina og hálfa milljón dala.
Grínkóngurinn Jerry Seinfeld og eiginkona hans Jessica eiga einnig hús í Amagansett. Það keyptu þau af Billy Joel á 25.600.000 dali árið 2000. Húsið er innréttað í mínimalískum stíl og dýrgripurinn ku vera 17.000 dala kaffivélin Elektra Deliziosa sem er í miklu uppáhaldi eigendanna.
Tónlistarmaðurinn Sean Combs á hús í East Hamptons sem best er að lýsa sem glerkastala. Það nældi hann sér í árið 1998 á litlar 2,5 milljónir dala. Kastalinn er með 4 svefnherbergi, 5,5 baðherbergi og er 418 fermetrar.
Líkt og Sean eiga gamanleikarinn Neil Patrick Harris og eiginmaður hans, David Burtka, hús í East Hamptons. Það er næst dýrasta hús listans á eftir húsi Jennifer en það kostaði 5,5 milljónir dala árið 2017. Húsið er með 4 svefnherbergjum, 5,5 baðherbergjum og er 487 fermetrar.