fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Fjögurra ára sonur Naya Rivera fannst einn um borð í bát – Leit hafin að konunni

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 9. júlí 2020 09:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óttast er um afdrif Glee stjörnunnar Naya Rivera eftir að fjögurra ára sonur hennar fannst einn um borð í bát á Piru-vatni í Kaliforníu. Leit hófst um leið af leikkonunni en henni var hætt þegar myrkva tók og er áætlað að hún hefjist aftur á fimmtudagsmorgni, um 13:00 á íslenskum tíma.

Sjónvarpsfréttastöðin KNBC sagði frá því að hin 33 ára Naya hafi leigt bátinn í skemmtisiglingu fyrir hana og son sinn. Er sonurinn sagðir hafa sagt viðbragðsaðilum að móðir hans hafi farið að synda og ekki náð til baka í bátinn. Lögreglustjórinn í Ventura sýslu, Eric Buschow, sagði á blaðamanna fundi að allt benti til þess að konan hafi drukknað af slysförum.

mynd/Skjáskot CBSLA

Rivera lék, eins og frægt er orðið klappstýruna Santana Powell í sjónvarpsþáttunum Glee. Var hún tilnefnd til Grammy verðlauna ásamt félögum sínum fyrir útfærslu sína á smellinum Don‘t Stop Believin‘ eftir hljómsveitina Journey. Rivera kom fram í 113 þáttum af sjónvarpsþáttunum vinsælu.

Rivera var um tíma í sambandi með Mark Salling. Salling framdi síðar sjálfsmorð eftir að hafa lýst sig sekan af vörslu barnakláms. Annar samleikari Rivera úr þáttunum lést árið 2013 af völdum of stórs skammts af heróíni og áfengisneyslu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði

Tveir látnir eftir umferðarslys í Eyjafirði
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram

Nóg að gera í Hafnarfirði – Skiptast á leikmönnum við Val fyrir stórleikinn og selja Harald aftur til Fram
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.