fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Bölvun Gleðisveitarinnar – Hræðileg örlög Gleestjarnanna

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 26. júlí 2020 12:15

mynd/filmdaily

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú kenning hefur náð flugi á Internetinu að bölvun hvíli yfir þáttaröðinni um Gleðisveitina, en leikkonan Naya Rivera drukknaði í Kaliforníu á dögunum og varð þar með þriðji aðalleikari þáttanna til að láta lífið langt fyrir aldur fram.

Þættirnir um gleðisveitina (e. Glee) eru vinsæl þáttaröð um söng, dans og gleði. Þættirnir fjölluðum um svonefnda gleðisveit unglinga í menntaskóla, ástir þeirra og örlög. Það var ekki alltaf tekið út með sældinni að vera í gleðisveitinni en í gegnum söng og dans virtust persónur þáttanna ná að yfirvinna hverjar þær aðstæður sem upp komu í lífi þeirra. En utan tökustaðar hafa miklar hörmungar riðið yfir leikendur og starfsmenn þáttanna, svo mjög að kenningar hafa vaknað um að bölvun hvíli á þáttunum.

Fórnaði sér fyrir soninn

mynd/people.com

NAYA MARIE RIVERA fór með hlutverk Santönu Lopez í þáttunum, klappstýra sem kallaði ekki allt ömmu sína. Eftir að þáttaröðin hafði runnið sitt skeið gekk Rivera að eiga leikarann Ryan Dorsey og átti með honum sitt fyrsta og eina barn, Josey. Árið 2017 var Rivera handtekin fyrir heimilisofbeldi gegn manni sínum og skildu þau í kjölfarið. Dorsey neitaði þó að leggja fram kæru og var heimilisofbeldismálið látið niður falla.

Þann 8. júlí síðastliðinn var tilkynnt að Riveru væri saknað eftir að fjögurra ára sonur hennar fannst aleinn á reki í bát á vatninu Lake Piru í Kaliforníu. Drengurinn fannst sofandi í björgunarvesti um borð í bátnum og gat hann greint lögregluyfirvöldum frá því að hann og móðir hans hefðu stungið sér til sunds og svo hefði Rivera komið honum aftur upp í bátinn en aldrei skilað sér þangað sjálf.

Upphófst umfangsmikil leit að Rivera. Daginn eftir að leit hófst greindi lögreglustjórinn á svæðinu frá því að við leit væri gengið út frá því að Rivera hefði drukknað. Fimm dögum síðar fannst Rivera og var opinberlega úrskurðuð látin. Talið er að hún hafi lent í miklum straumþunga í vatninu og nýtt síðustu krafa sína í að bjarga syninum. Dánarorsök var skráð drukknum af slysförum

Tapaði baráttunni við fíknina

mynd/BI

COREY ALLAN MICHAEL MONEITH fór með hlutverk Finn Hudson í þáttunum, ameríska fótboltamannsins með englaröddina sem lék lykilhlutverk í að færa Gleðisveitina til vegs og virðingar. Utan þáttanna glímdi Moneith þó við persónulega djöfla. Frá 13 ára aldri hafði hann glímt við fíkn og reyndist erfitt að komast undan henni. Árið 2013 fannst samstarfsmönnum hans í þáttunum nóg komið, gripu inn í og hvöttu hann til að leita sér hjálpar. Moneith fór þá í meðferð og virtist allt horfa til betri vegar.

Aðeins tveimur mánuðum eftir að hann lauk meðferðinni fannst Moneith látinn á hótelherbergi eftir að hafa farið út að skemmta sér með vinum. Banamein reyndist banvæn blanda af vímuefnum og áfengi. Ekki var talið að um viljaverk væri að ræða. Moneith hafði farið í meðferð og þol hans fyrir vímugjöfum hafði minnkað svo mikið að skammtur sem hann hafði áður þolað vel, reyndist banvænn. Hann var aðeins 31 árs þegar hann lét lífið. Andlát hans lagðist þungt á samstarfsmenn hans, en að undirlagi mótleikkonu hans, Lea Michele, var ákveðið að halda töku þáttanna áfram og helguðu þau heilan þátt minningu Moneith og persónu hans Finns.

Gífurlegt magn af barnaklámi

mynd/Chronicle

MARK WAYNE SALLING fór með hlutverk Noah „Puck“ Puckerman í þáttunum, Puck var amerískur fótboltamaður, líkt og Finn, og bar litla virðingu fyrir samnemendum sínum í Gleðisveitinni, eða allt þar til að hann öðlaðist kjarkinn til að viðurkenna að hann hafði gaman af því að syngja og dansa.

Tveimur árum síðar var Salling handtekinn á heimili sínu í Los Angeles grunaður um vörslu barnakláms. Við húsleit heima hjá honum fannst gífurlegt magn af barnaklámi og málið spurðist fljótlega út  opinberlega. Ljóst var að Salling var búinn að vera. Hann var í kjölfarið ákærður og sakfelldur fyrir
brot sín. Átti hann yfir höfði sér fjögurra til sjö ára fangelsi auk þess sem hann kæmi til með að þurfa að vera á skrá yfir kynferðisbrotamenn og leita sér meðferðar við barnagirnd. Áður en dómari hafði ákvarðað refsinguna fannst Salling, sem þá var laus gegn tryggingu, látinn nærri heimili sínu. Dánarorsök var sjálfsvíg.

Kenndi Juliu Roberts um

mynd/nydailynews

Það voru ekki bara leikarar þáttanna sem féllu frá langt fyrir aldur fram.

JIM FULLER var aðstoðarleikstjóri þáttanna. Hann varð bráðkvaddur í svefni árið 2013, aðeins 41 að aldri. Við þættina vann einnig kona að nafni NANCY MOTES. Hún var yngri systir stórstjörnunnar Juliu Roberts og bar systur sinni ekki fagra söguna en hún sakaði Roberts um mikla stjórnsemi og vanvirðandi framkomu.

Motes tók eigið líf árið 2014 en hún glímdi við alvarlegt þunglyndi. Hún skildi eftir sig bréf til unnusta síns þar sem hún kvað móður sína og systur meðal annars bera ábyrgð á hvernig komið var fyrir henni. „Móðir mín og svokölluð systkini mín fá ekkert eftir mig nema minninguna um að það voru þau sem ollu mínu versta þunglyndi.“

Önnur hneyksli Gleðisveitarinnar

LEA MICHEL var stjarna þáttanna. Hún hefur nýlega verið sökuð um að beita meðleikara sína einelti og
yfirgangi á tökustað og vera með yfirgengilega stjörnustæla.

JESSE LUKEN fór með gestahlutverk í þáttunum árið 2012. Hann var handtekinn og kærður fyrir ölvunarakstur árið 2019, sem þótti mikið hneyksli.

Leikkonan HEATHER MORRIS fór með stórt hlutverk í þáttunum. Hún varð fyrir því árið 2010 að óprúttnir tölvuþrjótar komust í nektarmyndir af henni og birtu á Internetinu.

Leikararnir MELISSA BENOIST og BLAKE JENNER léku bæði í þáttunum og áttu í ástarsambandi utan þáttanna. Benoist greindi síðar frá því að Jenner hafi beitt hana ofbeldi í sambandinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“

Ríkharð segir þetta ástæðu þess að KSÍ hefur ekki ráðið framkvæmarstjóra – „Hún er byrjuð í annarri vinnu og þiggur laun þar“
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?

Ísraelar hefndu sín í nótt: Hvað gera Íranir núna?
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433
Fyrir 14 klukkutímum

Evrópudeildin: Ensku liðin bæði úr leik – Roma henti Milan úr keppni

Evrópudeildin: Ensku liðin bæði úr leik – Roma henti Milan úr keppni
433
Fyrir 15 klukkutímum

Sambandsdeildin: Framlengt í báðum leikjum – Aston Villa áfram eftir dramatík

Sambandsdeildin: Framlengt í báðum leikjum – Aston Villa áfram eftir dramatík
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.