Ofurfyrirsætan Gigi Hadid og söngvarinn Zayn Malik eiga von á sínu fyrsta barni samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs.
Samkvæmt heimildum ET er Gigi aðeins komin nokkra mánuði á leið og eru fjölskyldur þeirra hæstánægðar með fréttirnar.
Parið á eftir að greina frá gleðifregnunum opinberlega.
Gigi og Zayn byrjuðu að hittast árið 2015. Þau hættu saman í mars 2018 og byrjuðu aftur saman stuttu seinna. Þau hættu aftur saman í janúar 2019 en tóku aftur saman í lok árs 2019. Þau staðfestu samband sitt í febrúar 2020.
Gigi fagnaði 25 ára afmæli sínu á dögunum í faðmi fjölskyldunnar. Hún deildi myndbandi af sér, Zayn og systur sinni, Bellu Hadid.
https://www.instagram.com/p/B_bK5-cH6I5/