Hertogaynjan Meghan Markle er að sögn The Daily Mail tilbúin að bera vitni gegn föður sínum í dómsmáli gegn bresku pressunni.
Meghan stendur nú í málaferlum við Associated Newspapers, eigenda miðlanna Sunday, Mail on og MailOnline vegna fréttar þar sem hlutar af handrituðu bréfi Meghan til föður hennar voru opinberaðir.
Lögmaður Meghan sagði fyrir rétti að Meghan hefði mátt þola gífurlegt persónulegt áfall og streitu vegna aðfarar pressunnar að henni og persónu hennar. Jafnframt gerði lögmaður hennar það ljóst að hún hefði fullan vilja til að gefa skýrslu fyrir dómi.
Dómsmálið hefur í erlendum miðlum verið kallað Markle gegn Markle, en faðir Meghan, Thomas Markle, er tilbúinn að bera vitni gegn dóttur sinni. Lögmenn Meghan hafa kallað Thomas lygara, hann hafi logið til um ástæðu þess að samband hans og Meghan hafi orðið stirt.
Thomas heldur því fram að hann hann hafði neyðst til að opinbera persónulegt bréf sem Meghan sendi honum, til að hreinsa nafn sitt í kjölfar þess að hann var útmálaður sem illmenni af bresku pressunni. „Ég opinberaði aðeins hluta bréfsins, þar sem aðrir hlutar þess voru of sársaukafullir. Bréfið bar ekki með sér ást og mér fannst það verulega særandi“, sagði Thomas við the Mail á sunnudaginn.
Beri Meghan vitni þarf hún að svara fyrir það hvort hún hafi viljandi beðið vini sína að leka upplýsingum um bréfið til erlendra miðla til að ráðast að persónu föður síns. Þessir vinir hennar gæti einnig verið gert að bera vitni.
Meghan heldur því fram að fjölmiðlar hafi áreitt og notfært sér förður hennar, þrátt fyrir að hún hafi ekki talað við föður sinn síðustu tvö árin og veit þar af leiðandi ekki hvort faðir hennar sé sammála þeirri fullyrðingu.
Dómsmálið má rekja til þess að Meghan telur að brotið hafi verið gegn persónuvernd og friðhelgi einkalífs hennar þegar bréfið hennar var opinberað.