Karlmaður leitar ráða hjá kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre. Maðurinn er í stökustu vandræðum að finna ástina því í hvert skipti sem hann segir konum hvers konar undirfatnaði hann klæðist, hætta þær að tala við hann.
„Ég er að tala við nokkrar konur á stefnumótasíðu. Þær virðast hafa áhuga á mér þar til ég minnist á að ég elska að klæðast kvenmannsundirfötum.
Sumar voru vingjarnlegar varðandi þetta en vildu samt ekki kynnast mér meira. Sumar konur hafa bara blokkað mig.
Ég er 49 ára og hef áður reynt að brjóta þennan vana. En ég er ráðvilltur. Ætti ég að segja konum þetta þegar ég er að kynnast þeim, eða ekki?
Það er ekki skaðlegt fyrir gaur að njóta þess að klæðast kvenmannsundirfötum,“ skrifar maðurinn í bréfi sínu til Deidre.
Deidre ráðleggur manninum að bíða með að deila þessum upplýsingum með konum.
„Þetta er tegund af blæti en það er ekki mikill munur á því að njóta undirfata á kvenmanni og að klæðast þeim fyrir eigin ánægju.
Prófaðu að kynnast frekar mögulegum mökum út í hinum raunverulega heimi. Þar sem fólk getur byrjað að kynnast þér sem manneskju áður en þú deilir þessum persónulegu upplýsingum um þig.“