Toni Galloway er tveggja barna móðir frá Skotlandi. Í nóvember í fyrra þurfti hún að taka leyfi í vinnunni. Hún var byrjuð á breytingaskeiðinu og einkennin voru svo mikil að hún gat ekki unnið. Hún fékk slæm hitaköst og það leið reglulega yfir hana vegna járnskorts.
Þetta var erfiður tími fyrir Toni en heilsuvandamálin buðu upp á ný tækifæri. Toni byrjaði að selja djarfar myndir af sér á netinu í janúar á þessu ári. Í samtali við Daily Mail segir hún að hún hafi þénað talsvert af myndasölunni og að aðdáendahópur hennar fari ört stækkandi.
Að sögn Toni eru þetta ekki nektarmyndir sem hún er að selja.
„Nekt er gefin í skyn en það sést ekki allt. Ég er venjulega með eitthvað fyrir einkastöðunum eins og hatt, eitthvað sem skilur eitthvað eftir fyrir ímyndunaraflið. Ég hef þetta smekklegt og sýni aldrei á milli fótleggjanna,“ segir hún.
Toni er stolt af því sem hún gerir og hefur sjaldan verið eins sjálfsörugg. Hún segir breytingaskeiðið ekkert breyta því að hún sé kynþokkafull.
„Ég vil sýna öðrum konum að það er aldrei of seint og þú þarft ekki að vera tágrönn eða hávaxin. Líkami minn er eitthvað sem ég ætti að vera stolt af,“ segir hún.
Hún er nú alvarlega að hugleiða að segja upp starfi sínu sem umönnunaraðili á elliheimili og einbeita sér að því að selja djarfar myndir af sér.