fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Sonur Cindy Crawford réttlætir andlitstattúið

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 11. febrúar 2020 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Presley Gerber, 20 ára sonur ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford, réttlætir ákvörðun sína að hafa fengið sér tattú á andlitið.

Presley hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir nýja húðflúrið. Hann opnaði sig um málið í Instagram Live á laugardaginn. People greinir frá.

„Þú veist ekki hvernig mér líður. Þú ert ekki í hausnum á mér,“ sagði hann.

Nýja tattúið.

Það stendur stórum stöfum „MISSKILINN“ (e. misunderstood) á hægra kinnbeini hans og þegar hann var spurður um meiningu þess sagði hann:

„Ætli mér finnist ég ekki misskilinn.“

Í sama myndbandi hvatti Presley fylgjendur sína til að tjá sig við hann í persónu, ef þeir hefðu eitthvað slæmt að segja.

„Ef einhver hefur eitthvað að segja við mig um þetta, eða eitthvað annað eins og fjölskyldu mína eða um æskuna mína, þá skal ég gefa upp heimilisfangið mitt – ég lofa – og þú getur komið og sagt það við mig í persónu,“ sagði hann.

„Ef ég hélt að þetta myndi eyðileggja andlitið mitt eða mig langaði ekki í þetta, þá hefði ég ekki fengið mér það. Ég held að það sé frekar augljóst. Það stendur „misskilinn“ því þannig hefur mér liðið allt mitt líf.“

https://www.instagram.com/p/B8SSTERgt7i/

Vinur Presley, fyrirsætan Cameron Rorrison, var viðstaddur í myndbandinu og sagði að foreldrar Presley elskuðu nýja tattúið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni

Nokkur ráð til að losna undan símafíkninni
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar

Svona er tölfræðin hjá Slot sem er sagður taka við Liverpool í sumar
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“

Er hiti á Arnari í starfi? – „Þá heimta ég ekki að þættinum sé cancelað og að Gísli Einarsson sé rekinn“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.