Parið Elan, 37 ára, og Kat, 27 ára, búa í Miami. Þau kynntust á netinu fyrir tveimur árum og pössuðu fullkomlega saman þar sem þau eru með sömu langanir.
„Sem tvíkynhneigð kona er það mikilvægt fyrir mig að vera með maka sem er opinn fyrir því að leyfa mér að kanna áhuga minn á konum,“ segir Kat.
„Mín fantasía er tvær konur á sama tíma, sem við gerum tvisvar til þrisvar í viku,“ segir Elan.
Brjáluð byrjun
„Fyrst þegar við byrjuðum saman vorum við klikkuð,“ segir Kat.
„Við vorum með fjórum til fimm mismunandi stelpum á hverju kvöldi. Það vilja kannski ekki allir karlmenn þannig samband eða líður þægilega í svoleiðis sambandi. Þannig ég var svo ánægð að hafa kynnst Elan.“
Áður var Elan og Kat kynntust var Elan giftur. En þegar því lauk hóf hann nýtt líf í nýrri vinnu. Hann er svokallaður atvinnu „höstlari“ (e. professional pickup artist) og hefur fullkomnað kerfi í gegnum árin til að næla sér í konur.
„Þetta virkar svo miklu betur en þegar aðrir reyna við konur,“ segir Kat.
Í þætti Barcroft TV fer parið á fyrsta stefnumót með Ashley sem þau kynntust á stefnumótasíðu.
Fljótlega verður andrúmsloftið vandræðalegt og það kemur í ljós að Ashley laðast mjög mikið að Kat en finnst Elan „vingjarnlegur.“
Horfðu á myndbandið hér að neðan.