Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynju af Sussex, mun ber vitni gegn dóttur sinni í máli hennar gegn útgefanda breska blaðsins Mail On Sunday. US Magazine greinir frá.
Thomas verður eitt af lykilvitnum fjölmiðilsins og hefur gefið lögfræðingum áður óséð skilaboð milli þeirra feðgina fyrir brúðkaup hennar og Harry Bretaprins í maí árið 2018.
Í málsgögnum er sumum skilaboðunum lýst og í einu þeirra á Harry að vera sá sem sendir þau og sakar Thomas um að særa Meghan með því að segjast ekki ætla að koma í brúðkaupið.
„Ég hef ekki gert neitt til að særa þig Meghan eða neinn annan,“ skrifaði Thomas Markle til baka samkvæmt The Sun.
Meghan og faðir hennar hafa ekki talast saman eftir „papparazzi skandallinn“ sem gerðist nokkrum dögum fyrir brúðkaupið. Thomas tjáði sig einnig fjálglega um málefni dóttur sinnar í aðdraganda brúðkaupsins.
Sjá einnig: Pabbi Meghan Markle er að fara á taugum – Mætir líklegast ekki í brúðkaupið
Meghan höfðaði mál gegn breska blaðinu Mail On Sunday í október fyrir að birta „persónulegt trúnaðarbréf“ hennar til föður síns, sem var skrifað á „erfiðum tíma undir miklu álagi.“
Að sögn lögfræðinga hennar innihélt bréfið hennar „persónulegar hugsanir og tilfinningar um heilsu föður hennar og samband hennar við hann á þeim tíma“ og að blaðið „hafi ákveðið að sleppa eða bæla niður“ mikilvæga hluta bréfsins.
Schillings, lögfræðifyrirtækið sem fer með málið fyrir Meghan, sakar blaðið um að stýra herferð niðrandi og falskra frásagna og hefur lagt fram kæru gegn blaðinu vegna meintrar misnotkunar á persónuupplýsingum, fyrir brot á einkaréttarvörðu efni og fyrir brot á lögum um gagnavernd.
Þungt er yfir höllinni þessa dagana eftir að hertogahjónin tilkynntu að þau ætli að stíga til hliðar frá konunglegum skyldum sínum og flytja til Kanada.
Sjá einnig: Þungt yfir höllinni – Áhyggjur af andlegri heilsu prinsins og Meghan komin með vinnu hjá Disney